miércoles, 15 de febrero de 2006

Ég þjáist af bloggleti og skólaleti. Ég nenni ekki að mæta í skólann ! en ég er samt rosadugleg að læra eeeennn vá hvað ég nenni bara ekki að mæta í tíma ! Mér leiðist í tímum og svo er svo mikið vesen að vera með fartölvuna þar svo að ég hef ekki glósað niður eitt einasta orð alla þessa önn :S Jebb ég á eftir að vera í djúpum .... hmmm já ekkert merkilegt að gerast hérna, ætla að skella mér í ljós á eftir og svo er algjörlega orðið nauðsynlegt að kaupa í matinn, innkaupastjórinn er haltur þessa dagana svo ég verð víst að fara í búð :Þ Svo er vísindaferð á föstudaginn í Bandaríska sendiráðið og júróvisjónglaðningur á laugardaginn ... eins gott að ég er ekkert að vinna þessa helgina :) Jebb ... Pirringur dagsins: Klukkan á Hlemmi er vitlaus !

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég held að þessi skólaleti sé að ganga þessa dagana...
En þú kemst nú alveg upp úr þessu, þó þú mætir ekki í tíma, þú ert svo geggjað klár :o) Hef fulla trú á því allavega !

Anónimo dijo...

Klukkan er ennþá vitlausari inni á Hlemmi. En er það ekki algjörlega out að fara í ljós??? 'eg hélt að það gerði hvort eð er ekkert gagn fyrir svona ljóskur eins og okkur

Íris dijo...

takk Rebekka mín :* þú ert algjört gull !

hehe já ég hef ekki farið í ljós í MÖRG ár en svo datt mér bara í hug að það væri fínt að fara, skella bara á sig slatta af sólarvörn til að brenna ekki og fá smá lit og svo er það líka bara svo kósý og afslappandi að fara í ljós :Þ