lunes, 6 de febrero de 2006

Eyjafjallajökull !! Bíddu eftir mér

Nú verður sko tekið á í ræktinni því ég þarf að vera komin í súperform fyrir 10. júní :Þ Ég ætla að labba á Eyjafjallajökul með Útivist. Það er 3 skóa ferð (semsagt erfiðasti flokkurinn), 18-20 km og hækkum 1500 m (tindurinn er 1688 m hár), ég held að göngutíminn sé svona 8-10 tímar. Þetta er næsthæsta gangan sem maður getur farið í, semsagt næstmesta hækkunin. Hæsta er bara Hvannadalshnúkur, hæsta fjall Íslands. Mig langar alveg rosalega að komast í þessa göngu, það væri æði :Þ Þetta er reyndar bara 2 dögum áður en við María förum út en vá ég held að þetta yrði alveg þess virði ! Skelli inn nokkrum myndum af jöklinum svona svo þið sjáið hvað málið er :Þ
Útsýnið ofan af fjallinu
Þarna er tindurinn
Jæja svo er það bara spurningin .... Hver kemur með ??? Ég treysti á mömmu, hugsanlega Erlu og svo kannski Orra og Maríu :Þ Eru einhverjir fleiri sem vilja vinna afrek ævinnar og skella sér með ;) ???

3 comentarios:

Anónimo dijo...

oh, ég væri svo til að prófa þetta!! Þetta væri sko afrek fyrir mig þar sem ég hef ennþá ekki gengið upp á topp Esjunnar. Við verðum bara að taka saman á í ræktinni, fá massa fætur og fara í amk eina Esjuferð áður til að hita upp ;)

Anónimo dijo...

Ég held að ég seti markmið mitt aðeins lægra, held að þetta sé svoldið mikið fyrir mig...en þegar ég er orðin "stór" þá kem ég pottþétt með þér ;o) En mér líst samt mjög vel á þetta hjá þér, líka svona rétt áður en þú ferð út...bara hið besta mál af mínu mati :o)

Anónimo dijo...

pass :)