martes, 21 de febrero de 2006

enn einu sinni eiturhress

Mín er hérna eiturhress, vaknaði kl. 6:30 í morgun til að mæta í vinnuna og svona verður það út vikuna. Ég elska að vakna snemma alveg fram að því þegar ég þarf að vakna. Alltaf þegar ég þarf að panta mér tíma hvort sem það er hjá doksa, klippingu eða eitthvað, þá panta ég alltaf tíma eins snemma og hægt er og svooo bölva ég kvöldið áður en ég á að mæta yfir því hvað ég sé rugluð :Þ Ég veit ekki hversu oft ég hef þurft að rúnta inn í Hafnarfjörð fyrir kl. 9 á laugardagsmorgni því ég er að fara í plokkun :Þ Ég var líka svaka dugleg í gær og skellti mér í pallatíma !! OMG hvað þetta var erfitt :Þ upphitunin var ekki búin þegar ég var orðin svo móð að ég gat varla andað og búin að drekka hálfan líter af vatni :Þ Og í dag uppsker ég svo miklar harðsperrur í kálfunum að ég get varla staðið :Þ En hey þetta var alveg ógeðslega gaman, mér finnst pallatímar vera æði, mætti alltaf í þá hérna í denn þegar ég var að æfa í Hress en það eru komin mmööörrrggg ár síðan ! En alla veganna þá ætla ég að halda áfram að mæta í þessa tíma því þeir reyna rosalega á þolið :D En jæja ég er búin að vinna kl. 13:30 og ætli maður skelli sér þá ekki bara heim að læra :S Svo er jóga kl. 17 .... já það er svo gott að vakna snemma, vera snemma búin í vinnunni og þá er allur dagurinn eftir :Þ

2 comentarios:

Anónimo dijo...

fúff pallar .... man að það var algjör dauði... meika ekki að vera svona dugleg eins og þú sko :)

Íris dijo...

hehe ég hef heldur ekkert farið að æfa frá því á mánudaginn af því ég er með svo miklar harðsperrur :Þ