Hvað er málið með kuldann !!! Ég sit hérna heima undir teppi og er algjörlega að frjósa *brrrrr* Á svona dögum verður alveg hryllilega kalt heima hjá mér, þá er ekkert að gera nema setja rafmagnsofninn í gagn og láta hann blása :Þ
Ég var svooo dugleg í morgun og mætti í pilates, vaknaði ekkert alltof hress því líkaminn minn er eitthvað að spila með mig þessa dagana :S en ég lét það ekki stöðva mig og mætti galvösk og frosin upp í gym kl. 9 í morgun :Þ
Ég er að fara að skila verkefni á morgun og ég er ekki byrjuð á því :S Ég þarf að taka viðtal við spænskumælandi manneskju en ég hef ekki enn fundið neinn til að tala við :S .... ennnn þetta reddast :Þ
Mér er of kalt á puttunum til að blogga meira svo ég segi bara chao .....
Heyrðu Rebekka, undanfarið hef ég verið í veseni með að postað komment á blogginu þínu ! Ég get ekki seifað þau ... :S
Ein mynd í lokin til að halda voninni um betra veður og hlýrri daga !
1 comentario:
Sendi þér hlýja strauma úr karabískahafinu ;o) Læt mig dreyma um að vera komin þangað ;o) hehehehehehe.....
Publicar un comentario