Jæja ég er í ögn meira bloggskapi í dag en í gær :Þ Sit heima, enn veik og ég svo sver það að ég er svo kvefuð að ég heyri verr en vanalega ! :O Ég er mjög léleg í að dunda mér heima þegar ég get ekkert annað gert :Þ eins og mér finnst nú venjulega ágætt að hanga ein hérna heima hjá mér þá er ég bara að deyja úr leiðindum :Þ
Ég ætlaði nú reyndar í skólann í morgun eeeenn þegar ég vaknaði og leit út um gluggann þá hætti ég við, valkostirnir sem ég hafði voru að annað hvort fara út í ískuldann og moka bílinn út úr stæðinu eða taka strætó og labba síðan smá spöl, leist ekki vel á hvorugan valmöguleikann svo ég bara svaf :Þ En það var kannski bara eins gott því Orri fór svo í skólann seinna um morguninn, fór á bílnum, það voru enginn stæði laus upp í skóla og svo festist hann og missti af tímanum :Þ Já stundum sökkar lífið smá :Þ
Þar sem að mér leiðist svo mikið þessa dagana þá eyði ég mestum tíma mínum í að hlakka til sumarsins :Þ Það er svona komin skýr mynd á hvernig þetta verður og ferðaplanið hljómar núna einhvern veginn svona: 13. júní fljúgum við út til Köben, 15. júní byrjum við Interrailið sem stendur til 15.júlí. 15. júlí endum við í Brighton alveg syðst á Englandi þar sem mamma og pabbi verða með hús og við verðum þar með þeim til 24. júlí. Þá förum við til London og verðum þar í svona 4 daga áður en við fljúgum heim alveg í lok júlí :Þ
Hljómar þetta ekki yndislega :D ég bara get ekki beðið eftir því að komast aðeins burt :Þ
Jæja ég ætla að hætta að lifa í dagdraumum og athuga hvort ég meiki ekki að lesa smá um sögu Azteka
martes, 17 de enero de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
"hlakka til sumarsins" sko...fyrirmyndarmanneskja :o)
mér lýst MJÖG vel á þessi ferðaplön! má ég koma með??? og ég er búin að fylgjast með sama bílnum núna 2 skipti í röð festa sig í bílastæðinu fyrir utan húsið hjá mér, mjög fyndið þegar maður situr sjálfur inní hlýjunni og manns eigin bíll er velgeymdur á verkstæði ;)
hahhaa já takk fyrir málfræðihrósið Rebekka :D
Publicar un comentario