domingo, 22 de enero de 2006

stalker motherfu*ker

Í gegnum tíðina hef ég þónokkrum sinnum lent í því að eiga smá stalker :S Enginn þeirra verið neitt sérstaklega scary en guð minn almáttugur hver öðrum hallærislegari ! Ég virðist bara vera svolítið freakmagnet :Þ
Ég held að þeir fyrstu hafi verið e-r strákar úr sérdeildinni í Öldó sem að hringdu heim til mín á öllum tímum, ég talaði aldrei við þá og þá fóru þeir bara að spyrja eftir öðrum fjölskyldumeðlimum mínum !
Annar var strákur sem var með mér í skóla í Vzla, hann mætti einn daginn og sýndi mér stoltur hvernig hann hafði skorið nafnið mitt í handlegginn á sér ! hmm ég reyndi pent að segja honum að svona væri hann ekki líklegur til að ná hylli kvenna en það virðist ekki hafa hjálpað neitt :Þ
Sá nýjasti (en er samt gamall) er strákur sem ég hitti í svona 3-4 daga á ferðalagi um Venezuela ! Var sem sagt frændi fjölskyldunnar sem ég fékk að vera hjá á þessu ferðalagi. Hann er búinn að vera að stalkera mig í gegnum msn síðan ég kom heim, biðja mig um giftast sér og flytja til Parísar og allan fjandann, var búinn að ákveða hvað við ættum að eignast mörg börn saman :S Hef ekki viljað henda honum út út af því að hann er frændi þessa fólks en ó men :Þ Hann eignaðist svo kærustu og hefur nú látið mig í friði í lengri tíma en svo var ég að tala við hann áðan og hann tilkynnti mér það að kærastan hans væri afbrýðissöm út í mig ! Ég hugsaði nú bara WHAT hvernig er það hægt ..... Nei nei segist gæinn þá ekki bara vera með risaspjald í herberginu sínu BARA MEÐ MYNDUM AF MÉR ! *hrrooollluuurr* ég veit ekki hvar hann hefur fengið myndir af mér því ég man ekki eftir að hann hafi einu sinni átt myndavél :S
Já sætt ekki satt :Þ Annars var ég alveg hryllilega andvaka í nótt, fór upp í rúm kl. 23 og steinsofnaði en vaknaði svo kl. 2 af því að einhver hringdi :S og ég gat ekki sofnað aftur fyrr en kl. 5 : / þannig að núna held ég mér varla vakandi *geisp* er að vinna til 14 og þá ætla ég beint upp úr rúm að sofa !

6 comentarios:

Anónimo dijo...

Frekar creepy frásögn hjá þér....

Íris dijo...

haha æ þetta hefur nú allt verið voða saklaust, þetta er allt í lagi meðan svona fólk er hinum megin á hnettinum :Þ

Anónimo dijo...

Já við skulum bara vona að hann haldi sig þar ;o) annars ef þig vantar vernd þá þekki ég fólk....hehehehe..... ;o)

Anónimo dijo...

krípí, eins gott að það er ennþá dýrara (vonandi) fyrir venezuela-búa að fljúga hingað en fyrir íslendinga að fljúga út. Stundum gott að búa á fjarlægri eyju.

Anónimo dijo...

hahahahahaha þetta var snilldar innlegg, ég alveg i kasti hérna...en ertu búin að gleyma hverst vegna gaurinn í sérdeildinni byrjaði að stokkera þig ??
Selman ákvað að lauma því að honum að þér finndist hann svo æðislegur svo rétt eftir að hann fór að sýna þér áhuga...
hahahaha sorry innilega krúttið mitt kiss kiss...

Íris dijo...

hhaa já grr Selma :Þ