sábado, 14 de enero de 2006

snjórail

Ég elska snjó en samt bara í hófi. Mér fannst ósköp kósý að fara út í gærmorgun og nánast grafa bílinn minn undir snjófarginu sem hafði lagst á hann yfir nóttina, alveg hreinn hvítur fallegur snjór og svo finnst mér líka svo gaman að keyra í snjó af því að maður er bara eins og á skautum (sem er náttúrulega líka ókostur :Þ) Eeeenn svo líður dagurinn og snjórinn verður að slabbi og slabb þoli ég ekki. Bílarnir keyra framhjá manni og henda yfir mann gusu af drulluslabbi og svo þarf maður að labba í þessu sulli. Þannig ég vil semsagt bara hafa hvítann nýfallinn snjó og ég vil að það rigni svo til að hann fari bara en verði ekki að vibbaslabbi sem að skemmir skóna mína og skilur mig eftir blauta í fæturna ! Jæja 5 mánuðir í Interrail og ég er farin að hugsa um hverju ég á að pakka, það sem ég er komin með eru spilastokkur, sólarvörn og hælsærisplástrar :Þ

2 comentarios:

Anónimo dijo...

hæ hæ , hei , er ekki löt, er bara ekkert búin að vera í tölvunni svo ég var ekki búin að sjá þetta :)
selma

Anónimo dijo...

Ekki gleyma að pakka myndavélinni! Þú vilt örugglega fylla bakpokann af einhverju öðru en mörgum einnotamyndavélum ;)