Djöfull er mér KALT !! Ég er ekki að trúa því að það sé svona kalt úti, held frekar að hitastillirinn í mér hafi eitthvað skekkst í morgun af því brrrrr ég er algjörlega að frjósa !
Well fyrsti skóladagurinn eftir jól *geisp* bíllinn er rafmagnslaus svo í dag er strætó bara málið ! Spáiði það kostar okkur Orra 1000 kall af fara í og úr skólanum í dag ! 1000 KALL !! og ef ég kaupi miða þá kostar það 800 kall !! Já strætó er raunhæfur kostur :S
En fyrst að ég er komin að málum sem krefjast mikillar peningaeyðslu þá spáiði í þessu .... Bækurnar fyrir mig og Orra þessa önnina kostar 60þús kall ! Orra 40 þús og mínar 20 þús. Það mætti halda að bækurnar hans Orra væru allar gullni slegnar :S En þar með tæmist ferðasjóðurinn minn sem ég var aðeins búin að ná að safna í :S
Orri er hættur að vinna á Háspennu svo hann verður bara að vera heima að vinna næsta sumar á meðan ég og María ætlum að skella okkur á Interrail :D En ferðasjóðurinn minn verður samt varla aumari en hann er í dag, stendur eiginlega á núlli :( svona er að vera í skóla. Ef að það verða samt engin frekari áföll fram að sumri þá ætti þetta nú að reddast. Svo nú er bara að krossa puttana og vona að bíllinn bili ekki (allaveganna ekki meira en hann er bilaður núna) :Þ
*geisp* mér tókst að fara á fætur kl.8 í morgun ! sem er afrek miðað við það að í gær þá þurfti ég að fara á fætur kl. 11 og ætlaði varla að geta það :Þ Ég hélt nefnilega að ég ætti að mæta í tíma kl. 9:40 en hey mér til mikillar "gleði" þá er tíminn ekki fyrr en 11:05 svo ég hef hangið á netinu í allan morgun *geisp*
hmm ætli ég fari ekki bara að skella mér af stað, kíki kannski á bóksöluna og kaupi eitthvað af þessum gullbókum fyrir önnina ! :D
lunes, 9 de enero de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
bílar og strætó eru vesen! og þá er nú gott að mamma vinnur í næsta húsi við skólann og hægt er að sníkja far einstakan sinnum.
Annars er hjólið raunhæfast kosturinn svo lengi sem veðrið hegða sér almennilega (og það gerist meira að segja stundum!!!)
Publicar un comentario