lunes, 30 de enero de 2006

mmmm svoooo hreint

Jei loksins komin ný vika og ég er ekki lengur veik :D hmmmm en ég mætti samt ekki í skólann í morgun :P *roðn* Það kom upp í mér ofurstress vegna fyrirlesturs sem við Kolla áttum að flytja og mér fannst ekki vera alveg nógu góður. Mér fannst voða góð hugmynd að mæta bara ekkert í dag og gera hann betur og flytja hann svo á miðvikudaginn. Kolla hinsvegar ákvað að vera dugleg og mæta samt í tímann og segja kennaranum bara að við gætum ekki flutt hann af því ég væri veik ..... Aumingjans Kolla var látin flytja hann ein :S :Þ Ég ætla rétt að vona að ég þurfi ekki að gera nýjann og flytja seinna :S Ég er að læra hérna heima en það gengur ekkert rosalega vel. Það er allt í RÚST ! Eldhúsið er eins og eftir kjarnorkusprengju, það er EKKERT leirtau hreint og ekki hægt að leggja neitt frá sér því það er drasl ALLS STAÐAR ! Ekki er restin af heimilinu skárri, þvottakarfan er svo full að það eru óhrein föt út um alla íbúð ! Svo hefur ekki verið keypt í matinn í lengri tíma svo ísskápurinn er tómur. Ég þurfti að borða peru í morgunmat ! :Þ
Áðan skrapp ég út í 11-11 til að finna mér eitthvað að borða, langaði ekki í aðra peru, og þegar ég kom aftur tók á móti mér þessi yndislega stybba :( Þannig ég sit heima hjá mér á fjallhárri ruslahrúgu umlukin úldnunarstybbu sem kemur líklegast af óhreinu diskunum : O mmmm það er yndislegt líf að vera fluttur að heiman ;) P.S Myndirnar eru ekki frá mér :P heldur frá íbúð fólks sem vann keppnina 2002 Messiest Apartment :Þ Var að spá í að taka myndir af minni og skrá okkur í ár :Þ
Annars stendur þetta allt til bóta, við höfum mælt okkur mót hérna heima uppvaskarinn og þvottakonan kl. 18:00 og áætluð verklok eru kl. 19:30. Þá get ég vonandi borðað kvöldmat í hreingerningarlykt og af hreinum disk :Þ Reyndar verður kvöldmaturinn örugglega bara pera af því það hefur enginn tíma til að kaupa í matinn í dag :S

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Mikið gaman að heyra að þú ert orðin hress :o) En hérna þú gætir náttlega alltaf boðið Heiðari snyrti og Margréti í heimsókn...gæti kannski sparað þér smá tíma :o)hehehehe.....Gangi þér annars vel með hreingerninguna á morgun !

Anónimo dijo...
Este blog ha sido eliminado por un administrador de blog.
Íris dijo...

haha já það er spurning :Þ veit ekki hvort ég myndi fíla að sjá draslið mitt í sjónvarpinu :P og svo held ég að þetta hafi ekki verið nógu sjokkerandi mikið til að vera sjónvarpsefni :Þ

Anónimo dijo...

Þau bæta nú örugglega einhverju ryki við og matarleifum hér og þar til að gera þetta áhugaverðara ;) Þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því.