martes, 31 de enero de 2006

hvað á ég að gera?? e-r tillögur?

Hvað á ég að gera við líf mitt?? !!! stór spurning og ég einfaldlega finn ekki svarið við henni. Önnur spurning sem ég á líka erfitt með að svara er hvað á ég að gera næsta haust?? Valmöguleikarnir sem ég hef eru:
  • Fara aftur í sálfræði
  • Halda áfram í spænsku
  • Fara í ferðamálafræði
  • Læra eitthvað allt annað
  • Taka mér pásu frá HÍ
Ég er sífellt að reyna að vega og meta kostina og gallana við hvern valmöguleika en ég bara kemst ekki að niðurstöðu.
  1. Ef ég fer fer aftur í sálfræði þarf ég að harka mér í gegnum frekar leiðinlegt BA nám sem er með miklar kröfur, mikið að gera, ömurlegar lágar einkunnir og leiðinlegan móral.
  2. Ef ég held áfram í spænsku er ég áfram í námi sem ég hef áhuga á en mér finnst ekkert sérstaklega krefjandi. Hvað á ég svo sem að gera við BA í spænsku? Kenna :S
  3. Hmm ferðamálafræði, það yrði eitthvað alveg nýtt en enn sem komið er þá eru enginn góð, vellaunuð störf í boði fyrir fólk með þessa menntun. Gæti verið skemmtilegt.
  4. Úfff hvað ætti það eiginlega að vera, ég er búin með 2 ár af þessum 5 hjá LÍN svo ég gæti alveg byrjað á nýju námi en vá ÉG NENNI ÞVÍ EKKI, mig langar ekki að fara á 1. ár í 3. skipti :S
  5. Fara ekki í nám í haust :S ooooggg gera hvað VINNA? hljómar ekki spennandi heldur.
Ég auglýsi eftir völu sem að sér framtíðina og getur mögulega sagt mér hvað í fjandanum ég á að gera !
-Íris hinn spænskumælandi ferðamálasálfræðingur-

4 comentarios:

Anónimo dijo...

ég hélt í smá stund að þetta væru myndir frá íbúðinni þinni úff hvað ég var fegin að svo var ekki hihi en já það er alltaf erfitt að velja! Ekki get ég hjálpað þar sem ég veit ekki heldur neitt í minn haus ;0/
kv. Hildur sál

Anónimo dijo...

Sælar...
Heyrðu ég er með fína hugmynd,en veit ekkert hvernig þér líst á hana.
En allavega svona hljómar hún:
Taka ævilanga pásu frá HÍ. Koma í HR, í viðskiptatungumálatengdabraut. Getur haldið áfram í spænskunni. Færð Bs í viðskiptafræði og meikar fullt af peningum til að borga námslánin. Námið tekur bara 3 ár og svo verðuru aftur með mér í skóla eins og the good old days ;)
En þetta er bara svona til að koma með komment.. Sýnist fólk ekkert vera allt of duglegt við að hjálpa þér við þetta .... ;)

Kv Krisín Laufey

Anónimo dijo...

Láttu hjartað ráða sagði einhver...en mér líst vel á sálfræðina og ferðamálafræðina, en ég treysti mér ekkert til að spá um framtíðina fyrir þig, hvað sem þú gerir þá held ég að þú veljir rétt :o)

Anónimo dijo...

Mér lýst mjög vel á ferðamálafræði+spænsku eins og æeg hef sagt áður, en ég er kannski ekki alveg hlutlaus þar sem ég hef alvarlega íhugað þann starfsvettvang sjálf. En þessi viðskiptafræði+spænsku hugmynd hljómar alls ekki illa. Jafnvel hægt að útfæra hana í HÍ ef þú hefur eitthvað á móti skólagjöldunum í HR.