Ég fékk mér nýjann gemsa í dag :D Ákvað loksins að taka mark á öllu fólkinu sem sagðist ekki geta talað við mig í símann fyrir dósahljóði og skruðningum, var sko alveg viss um að þeirra símar væri bara bilaðir :Þ En þegar 3 sögðu þetta sama bara í gær þá fór ég að spá og já síminn minn er ónýtur :S Mjög leiðinlegt af því ég alveg dýrkaði elsku dömubindasímann :Þ Hann nefnilega blikkaði alltaf svo snilldarlegu bláu ljósu þegar það voru missed calles :Þ
En jæja þetta er nýji gripurinn :D Ekkert aukadrasl á honum, er bara alveg eins og ég vil hafa gemsa :Þ Hann er líka minni og léttari en sá gamli svo ætli ég taki hann ekki í sátt fljótlega :) Hann er líka mörgum kostum búin, ég á bara eftir að sjá þá :Þ

2 comentarios:
til hamingju með nýja símann, hann er ógissla töff skilurru. Samt ekki jafn töff og minn því minn er töffaðastur, okeyyy
Þetta er náttla bara flottur sími;)
Publicar un comentario