Á einhver hérna töfraráð við verk í eyra. Mamma er búin að segja mér að setja hvítlaukrif í eyrað en það hljómar bara spúkí :Þ Ég er alveg að brjálast, mikið rosalega getur verið óþægilegt að vera illt í eyranu, það verður bara óþægilegt að hlusta og hey því miður þá getur maður ekki bara hætt að hlusta með öðru eyranum af því manni er illt !! Voðalega er maður vanþróaður:Þ
Eníhú þá er síðasta einkunnin komin í hús :D 7,5 í Ritþjálfun :D Þannig að ég er með 7,5 í meðaleinkunn fyrir þessa önn :D Orri er líka búinn að fá sínar og það þarf ekki að spyrja að því hann stendur sig alltaf frábærlega !!
Skólinn byrjar eftir 2 daga og mér líst bara ágætlega á þá kúrsa sem ég er að fara í. Ég reyndar get ekki með nokkru móti ákveðið hvort að ég eigi að taka fíluna eða fara í einhvern kúrs í sálfræði. Ef ég tek fíluna (sem er skylda fyrir BA í spænsku) þá verð ég með 18 einingar en ef ég tek sálfræðikúrs þá verða það brjálaðar 20 einingar. Ég óska semsagt eftir ákvarðanamaskínu sem gæti hjálpað mér að ákveða hvort að málið verður SPÆNSKA eða SÁLFRÆÐI !! Úff ætli ég endi ekki bara á því að fara ekkert í skóla næsta haust og kannski skelli mér bara út í heim ! Aldrei að vita ;)
Jæja þarf að fara að vinna :D

1 comentario:
öööö.... er ekki talað um að önnin í háskóla sé 15e ???? ekki ofgera þér
Publicar un comentario