martes, 10 de enero de 2006
Er ferðamálafræði svarið?
Ég held ég hafi fengið uppljóstrun áðan (segir maður það ekki annars :P) Ég held að ég sé loksins komin með hugmynd um það hvað ég vil gera við líf mitt og hvað ég ætla að læra og svarið er FERÐAMÁLAFRÆÐI :D !!
Ég vinn nú þegar í ferðaþjónustu og finnst það æði, ég er með bullandi ferðasýki sem virðist vera ólæknandi, ég tala nú þegar spænsku sem kemur sér vel :Þ og svo var þetta líka það sem ég var að stefna að með spænskunáminu :D
Þannig að ég tek 30e í spænsku sem ég klára í vor og svo þessar 60e sem eru í ferðamálafræðinni og voilá ég verð ferðamálafræðingur :Þ
Mig reyndar grunar og ég veit það reyndar fyrir víst að launin hjá þessari stétt eru kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir en hey það er ekki eins og ég sé á leiðinni að verða milli með annað hvort spænskumenntun þar sem maður endar líklegast sem kennari :S eða sálfræðingur sem vinnur hjá ríkinu eða við gagnagreiningu :S Þannig þetta er bara allt í lagi og svo er náttúrulega aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni :)
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

4 comentarios:
Góð hugmynd
ferðamálafræði er kúl! svo ef þú ert heppin færðu vinnu hjá ferðaskrifstofu og ferð erlendis amk einu sinni á ári til að prófa ný hótel og nýja staði ;)
hmmm hver er eiginlega donnarakvikindið?? :Þ
en já Kristín mér myndi lítast MJÖG vel á það :D
Ég held að maður segji uppljómun eða..æji hef reyndar ekki Guðmund?!?! Mér líst ógó vel á þetta:)
Publicar un comentario