viernes, 20 de enero de 2006

Enn einn veikindadagurinn í þessari viku

Ég var að koma frá doksa og ég er með eyrnabólgu :S Ætli kvefpestin sem ég var með hafi ekki komið henni svo svakalega af stað, mér er nefnilega búið að vera illt í eyranu frá því á áramótunum en ekki svona SVAKALEGA ! Ég verð að segja að ég er komin með nýjann skilning á því af hverju lítil börn gráta svona mikið þegar þau eru með eyrnabólgu, þetta er alveg ótrúlega sárt ! ég set þetta á sama stall og túrverkirnir sem ég fæ, sem ég hef BTW heyrt frá konum sem eru með þetta sama og hafa eignast börn, að séu verri en hríðir ! En jæja ég er búin að troða í mig verka- og sýklalyfjum og planið er að skríða upp í rúm um leið og þetta kikkar inn því ég svaf í svona 3 tíma og lá svo frá kl. 4 í nótt til 10 algjörlega að brjálast af því ég vildi ekki taka verkjatöflu áður en ég færi til læknisins svo ég gæti sagt honum hvar mér væri illt. Svo þegar ég vakna á eftir þá ætla ég að BORÐA sem hefur verið lúxus síðustu daga af því þetta leiðir svo í kjálkann og ég get varla opnað munninn :Þ Haha æ þetta er meira ástandið á manni en góðu fréttirnar eru þær að sýklalyfin eiga víst að virka fljótt á þetta !
-Íris sjúklingakjúklingur-

3 comentarios:

Anónimo dijo...

hahahahahaha ALDREI mun ég trúa því að túrverkirnir séu verri en hríðir, hlakka til þess dags þegar þú eignast barn og færð að upplifa hríðar :)

Anónimo dijo...

úpps gleymdi að segja.... vorkenni þe´r nú samt geðveikt að vera með eyrnabólguna.... láttu þér nú batna fljótt.selma

Íris dijo...

haha já takk ástin mín :*, ég er líka voða skeptísk á að þetta er satt, fæ vonandi einhvern tímann að athuga hvort þetta stemmir :P