Ég held ég þurfi bara að flytja út í sveit !! Frá því ég kom heim er ég búin að vera pirruð, uppstökk og útúrtjúnuð af stressi ... það er varla búandi með mér :S Úff og skólinn er ekki einu sinni byrjaður !! Ég held ég þurfi bara að kaupa mér hús einhvers staðar á Djúpavogi, skilja tölvuna eftir í bænum og vera svo bara þar ! já og fá mér hund því ég er ekki mjög mannvæn í svona skapi...
Ein mynd frá betri tímum. Sætar á áramótum :D
Íris sem mun pipra ef að henni tekst ekki að verða borgarstelpa á ný :Þ
Íris sem mun pipra ef að henni tekst ekki að verða borgarstelpa á ný :Þ

3 comentarios:
geggjuð mynd af ykkur systrum !!! verðum að fara að hittast skvís !Selma
OMG hvað ég skil þig vel - það er alltaf svo yndislegt að komast í sveitina og alltaf er jafn erfitt að koma sér aftur í borgargírinn á ný. En ég vona að þetta komi hjá þér, þarft bara að draga upp jákvæðnina þína :o) *knús*
ég var einmitt að láta mig dreyma um að flytja norður, kaupa bæ fyrir utan Akureyri (stutt í bæinn þega maður fær skyndilega borgarþörf) og eiga eins og tvo hesta og nokkrar hænur. Sól á sumrin og snjór á veturna :)
Publicar un comentario