Er ekki kominn tími á að taka smá reflection á árið sem er liðið .... Ansi viðburðaríkt verð ég að segja :D Ég flutti að heiman 9. janúar með hjartað í buxunum af því ég var viss um að þetta væri nú allt voða flókið þið vitið að þvo þvottinn sinn sjálfur og kaupa í matinn en hey ekkert mál :D Ég kláraði 1. árið í sálfræði (með einu falli sem ég bjargaði svo með glæstu sumarprófi). Ég og Orri fórum í hringferð um Ísland (æðislega gaman :D). Ég fékk vinnu sem ég elska (eftir að vera búin að vinna á 3 öðrum stöðum áður á árinu). Ég hætti í sálfræði og fór í spænsku og mér finnst það æði og svo í lok þessa árs náðum við Orri því að vera búin að vera saman í 3 ár !!
Ég er ekki mikil áramótaheitamanneskja því ég stend hvort sem er aldrei við svona heit einhver :Þ Ef ég ætlaði mér að setja mér einhver heit þá væru þau einhvern veginn svona: léttast um 10 kíló, standa mig betur í skólanum, vera agaðari, eyða minni pening, vera duglegari að hitta fólk, taka ákvarðanir án þess að skipta um skoðun 10 sinnum ..... en glætan að ég nenni þessu öllu svo ég set enginn heit þá þarf ég ekki að hafa samviskubit yfir að efna þau ekki :Þ
Í staðinn vil ég bara leggja línurnar fyrir árið sem er runnið upp, þessar línur mínar eru mátulega óskýrar sem hentar mér vel :Þ Það sem ég ætla að gera er: Klára fyrsta árið í spænsku, fara á Interrail næsta sumar og vera úti í svona 6-8 vikur og reyna að ákveða hvað ég ætla að gera næsta haust :D
Kveð í bili - Íris sem er aðeins að komast aftur inn í tækniöldina og er hætt að verða hissa þegar það birtast takkar á skjánum þegar hún ýttir á takkana á lyklaborðinu :D

No hay comentarios.:
Publicar un comentario