viernes, 6 de enero de 2006
06.01.06
Jæja nýr og betri dagur :Þ Ég fór ekki að sofa í nótt fyrr en að ganga 5 svo það varð ekki mikið úr þessum degi hjá mér :Þ en æ stundum er bara fínt að kúra uppi í rúmi :D
Það eru bara 3 dagar í að skólinn byrji, jólafríið hefur alveg flogið frá mér ! Ég er samt búin að ná að vinna mér inn smá pening þannig að 1. febrúar ætti að vera góður dagur :D
Eins og svo oft áður þá stefni ég að mikilli betrumbót, hún er eiginlega farin að vera mjööööggg þörf. Ég einhvern veginn hlunkaðist í gegnum síðustu önn og núna langar mig að lifa aðeins reglusamara lífi u know mæta í tíma og svona til tilbreytingar !! og eyða kannski smá tíma á Hlöðunni við að læra !! svo náttúrulega líka krækja mér í smá sjálfsaga bæði til að drösla mér á fætur á morgnanna og svo líka til að mæta smá í ræktina :Þ En það kemur í ljós hvort að mitt nýja og betra líf hefjist á mánudaginn ;)
Ég er enn að bíða eftir síðustu einkunninni !! ótrúlegt hvað það getur tekið langann tíma að fara yfir nokkur próf !! Maður fyrirgaf það svosem alveg í sálfræðinni þar sem voru yfir 100 með manni í kúrsi en núna erum við bara rétt 30 oft og allir hinir kennararnir hafa bara tekið sér svona rúmlega viku svoooo nú er mín orðin óþolinmóð :Þ
Jæja ég er víst í vinnunni og ætla að sýna smá lit :D
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario