miércoles, 7 de diciembre de 2005

Þvílíkt andleysi!

Þvílíkt andleysi *geeiiiiisp* (ég var akkúrat að geispa þegar ég skrifaði þetta) Er á Hlöðunni og er búin að sitja hérna frá því kl. 9 í morgun úff og ómen ég meika ekki meira, ég er komin með ógeð á prófunum og er ekki einu sinni byrjuð :Þ
Ég er svo sybbin að ég er viss um að ef ég myndi loka augunum í svona 5 sekúndur þá myndi ég steinrotast hérna fram á borðið ! En bjarta hliðin á því er að ég mun alla veganna geta skriðið snemma upp í rúm í kvöld :Þ Jæja hver vill koma og gefa mér orkusprautu svo ég fari að kíkja á bókmenntafræðina ??? Bíð spennt eftir því hverjum þykir vænst um mig og mætir upp á Hlöðu til mín með súkkulaði (Rittersport blátt) og fær í staðinn knús og koss ..... Jæja ég sit og bíð !! Annars enda ég eins og stelpan á myndinni !!! Svona í lokin þá eru hérna 2 linkar á alveg hilarious barnalandsumræður, svona fyrir þá sem vilja taka smá pásu frá lestrinum og grenja smá (úr hlátri auðvitað Versta jólagjöfin Skrítnasti staðurinn Gangi ykkur öllum vel í lestrinum elskurnar mínar

2 comentarios:

Anónimo dijo...

takk snúlla fyrir uppbyggjandi komment á bloggið mitt :o) *knús* en þvílíkar umræður á barnalandi, vá segi ég nú bara, hehehehe....
Gangi þér svo vel með lesturinn :o)

Anónimo dijo...

BAHAHAHAHAH ég bókstaflega grenjaði úr hlátri yfir verstu ggjöfunum - endalaust fyndið:D Takk og gangi þér sömuleiðis mjöööög vel að læra:)