Í gærkvöldi var hið árlega (jaaa þetta var fyrsta árið :Þ) smákökukvöld á Traðarbergi 25. Mættir voru ég og mamma :Þ og bakaðar voru sörur :D Já við ákváðum að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og gera þetta sjálfar til að sjá what all the fuzz is about og hey þetta var bara ekkert erfitt !! Bökuðum yfir 100 stykki og það eina sem við klúðruðum var fyrsta fyllingin :Þ var enn eins og vatn eftir að hafa verið í kæli í 2 tíma :Þ Svo ég lýsi okkur mömmu hér með Sörusnilla og munum við stoltar bera þann titil fram að næsta smákökukvöldi :Þ
Annars er þessi dagur búin að fara í baráttu við TR og bleika og hvíta miða. Við eigum að fá borgaða styrki útaf aðgerðinni sem Orri fór í en við þurfum að mæta með alla pappíra til þeirra og það verður sko þrautinni þyngra að gera það :S Úff fórum í TR og fengum eitthvað borgað til baka en vá þetta á eftir að vera þvílíkt vesen, allir gamlir reikningar eru komnir niður í kjallara eða önnur hús hjá tannsa og þvílíkt vesen að fá allar þessar upplýsingar og TR veit ekki neitt af því þeir byrjuðu ekki að skrá þessar upplýsingar fyrr en eftir 2002 :S
Svoooo eru þeir svo kræfir !! Þeir borga til baka eftir SINNI gjaldskrá sem er svona 25% lægri en það sem við borgum tannsanum þannig eins og í dag komum við með kvittanir upp á meira en 60 þúsund og fengum af því 40 þús til baka :S Æi þetta er svo mikið bákn og við þurfum að fara að tína allt til svo að við fáum eitthvað af þessari svona hálfu milljón sem er búin að fara í þetta : /
Svo vil ég benda öllum sem eru fæddir 81-85 að skella sér í bólusetningu fyrir hettusótt, það er verið að benda þessum hópi á að fara útaf því það hafa víst verið óvenjumörg hettusóttartilfelli undan farið og þettu getur víst verið ansi alvarlegt for the private parts á strákunum alla veganna :P og svo er þetta víst alveg ömurleg veiki sem stendur lengi yfir og er mikið óþægileg. Við skunduðum áðan á heilsugæsluna og létum stinga okkur, voða lítil nál og svo þarf maður ekkert að borga :Þ
Tvær myndir af ofurbaksturskonunni í action :Þ




3 comentarios:
Það er þá eins gott að þið fáið ekki aukaverkanirnar af hettusóttar-sprautunni! ég hringdi nebbla uppá heilsugæslu því ég er ekki alveg tilbúin að fá einhverjar aukaverkanir í miðjum prófum!! og veistu hvernig þessar aukarverkanir eru? Þiðjungur þeirra sem fara í sprautuna fá Mislinga-einkenni og hita eftir 5-14 daga (eða var það 4-12 daga?) hmmm...þið hljótið samt að sleppa
Úff ég kíkti á landlaeknir.is og þar segja þeir að aukaverkanirnar séu óverulegar :S en ég held samt sama hvað þá séu aukaverkanirnar alltaf miklu skárri heldur en að fá pestina sjálfa :Þ Ég krossa bara mína putta og vona að ég fái ekki neitt :Þ
Já er sammála því, ég fer í sprautuna eftir jól..aukaverkanir or no aukaverkanir
Publicar un comentario