jueves, 1 de diciembre de 2005

Kósíheit par exelans

....Allir þurfa jú að passa línurnar. Viljum ekki enda eins og svín - er það? Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma.... Ég er með prófa-jólakvíðaröskun. Er ég sú eina sem finnst prófin í háskólanum eyðileggja jólin !! Ég þoli ekki að vera í prófum til 20. desember, maður missir alveg af desember og öllu því yndislega sem honum fylgir því maður getur ekkert gert nema stela tíma frá lestrinum...
Ég alveg krossaði alveg alla mína putta og tær og vonaði að í ár myndi ég vera búin í prófunum fyrir 20.des, var meira segja að vona að losna kannski svona 17. eða 18. og kannski getað verslað gjafirnar og svona í rólegheitunum því ég er að fara úr bænum 21. des og kem ekki aftur heim fyrr en í janúar ... Ohh æ ég er bara pirruð :Þ Mig langaði líka að eiga smá jól með Orra fyrst hann verður heima eeeeennnn nei greyið er í 2 prófum 21. des svo það er ekki eins og við náum e-m jólatíma : /
hmmm já ég er greinilega í jólaskólaþunglyndi !! vildi óska þess að ég væri enn í framhaldsskóla :Þ Annars fór ég í munnlegt próf í morgun, það gekk nú alveg ágætlega svona fyrir utan það að röddin á mér skalf svo mikið og tungan þvældist fyrir af eintómu stressi :Þ ekki gott þegar mðaur er í prófi í AÐ TALA :Þ en ég vona að ég hafi komið upp e-u af viti :Þ Eníhú 9 dagar í fyrsta próf - 19 dagar í próf lok - 23 dagar til jóla hmmmm já og ég er blönk :Þ svona er það þegar það bætast við 2 reikningar sem saman eru upp á 120 þús kall !! össs en nei nei það reddast reyndar þegar við höfum fengið borgað úr almannatryggingalottóinu sem við unnum í október ;) Kveðja Íris í jólaskólaþunglyndi sem er með öll jóla/aðventu/þorláksmessu lög Baggalúts á repeat til að halda geðheilsunni :Þ .....Réttu rauðkálið, grænu baunirnar Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar? Hvernig smakkast svo? - Þetter yndislegt.....

3 comentarios:

Anónimo dijo...

ég var að skoða netbankan minn núna rétt áðan, gladdist fyrst gífurlega yfir laununum mínu sem voru meiri en ég átti von á :) Það er alltaf gaman. En svo skoðaði ég reikningana mína... Ég gleymi því alltaf að það kostar að vera í skóla - og þar með fóru allir aukapeningarnir

Anónimo dijo...

ohhh, þetta er nú frekar fúlt að vera svona lengi í prófunum, þú átt alla mína samúð yfir þessu :o(
Vona nú samt að þú fáir að njóta jólanna sjálfra alveg í botn. En gangi þér vel í prófunum, ég hugsa til þín :o) knús Bekka

Íris dijo...

takk :* ég komst yfir jólaskólaþunglyndið með því að fara niður í kjallara og finna jólaskrautið mitt og setja svona smá upp :Þ