Fyrsta einkunnin komin í hús og hún er tatataratata 8 ! :D Ég fékk meira segja 9 úr munnlega hlutanum sem mér finnst alveg ótrúlegt af því að í prófinu þá var ég svo stressuð og röddin á mér skalf allan tímann og tungan var svo ekki samvinnuþýð svo mér fannst ég bara vera að segja eitthvað bull :Þ en eitthvað af því hefur greinilega hljómað eins og spænska ;)
En jæja þriðja prófið er á morgun, Ritþjálfun. Ég er EKKERT búin að læra :S er ekkert stressuð fyrir það og það væri svo gott á mig ef ég myndi falla í því :S Eftir það eru bara 3 dagar í erfiðasta prófið sem er saga :S svo ég þarf rækilega að fara að sparka í rassinn á mér !!
Ég er búin að borða svooooo mikið af sörum að ég gæti dáið ! Ég er bókstaflega sprungin af söruáti ! En ég verð örugglega komin yfir það á næstu jólum :Þ
viernes, 16 de diciembre de 2005
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
Til hamingju með frábæra einkunn! Ég er auðvitað ekki búin að fá út úr neinu prófi og ef ég þekki sálfræðideildina rétt þá koma fyrstu einkunnir einhverntíman eftir áramót...!
Til hamingju með einkunina, þú ert líka svo mikill proffi ! Maður átti nú ekki von á öðru frá þér :o)Gangi þér vel með restina, knús (",)
Publicar un comentario