Ég óska eftir töfrafjarstýringu, hún verður að vera bleik og með forwardtakka. Þessi takki verður svo að virka til að geta forwardað lífi mínu fram um svona eins og 16 daga. Ég vil vakna aftur akkúrat þar sem ég geng út úr síðasta prófinu mínu. Svo óska ég líka eftir minniskubb sem getur innihaldið allt sem ég þarf að vita fyrir prófin næstu 16 dagana, hann vil ég geta plöggað í heilann á mér og vista allar upplýsingarnar þar. Þetta verður til þess að ég mun líka brillera á öllum þessum prófum sem eftir eru. Ef einhver lumar á þessum galdrabúnaði þá er hann vinsamlegast beðin um að láta vita af sér í kommentum hérna fyrir neðan. Takk
Að öðru, ég vil minna fólk á að það er komin desember og komin tími til að vera góður við náungann hvort sem hann er hér á landinu eða erlendis.
Fyrir þá sem vilja styrkja hjálparstarfið í Pakistan þá er hérna bankareikningurinn 1151-26-12 og kennitalan er 530269-2649 Svo er líka hægt að hringja í 9072020 og láta 1000 krónur dragast af símreikningum !! Þúsund kall er enginn svaka peningur fyrir okkur en getur virkilega hjálpað þeim sem þurfa á honum að halda !!
Ansi gott að hugsa aðeins um náungann alla veganna svona einu sinni á ári :D


3 comentarios:
Þegar þú nærð að redda þér þessum minniskubbi og fjarstýringu værir þú nokkuð til í að lána mér þetta...það væri ekki slæmt skal ég segja þér, því heilinn í mér er orðinn af einhverri kássu og prófin eru ekki einu sinni byrjuð :S !!!
Og í sambandi við að hjálpa náunganum þá er líka hægt að skella sér í skífuna og kaupa Hjálpum þeim geisladiskinn (ég ælta amk að gera það :D )
Heyrðu ég á svona fjarstýringu hún er reyndar græn og gengur fyrir kolum, stenst ekki alveg nútímakröfur um hraða, þannig að 16. dagar er heldur mikið fyrir hana, en ég get alveg lánað þér hana ef þú vilt ;o) hehehehe
Gangi þér vel með lesturinn skvís :o)
margt smátt gerir eitt stórt - amk í flestu Hagkaupsbúðum og örugglega fleiri búðum eru söfnunarbaukar, tilvalnir fyrir afganginn sem togar í vasana
Publicar un comentario