*geeeeeeiiiiiiiisp* eru það fleiri en ég sem sjá eitthvað mynstur hérna :Þ alltaf þegar ég þarf að mæta snemma í vinnuna er ég alveg ónýt af því ég er svo þreytt !! Það var nú reyndar ein ákveðin manneskja sem gerði sitt besta til að láta mig sendast út um allan bæ eftir miðnætti í gær og þar með gulltryggja þennan króníska geispa sem ég er með í augnablikinu !
Ég og Orri fórum að jólajólast í gær, reyndar jólajóluðumst við ekki neitt en úr þessu var svaka bæjarferð um allar trissur að redda hinu og þessu. Jahh eða reyndar þegar ég hugsa um það þá náðum við ekki að gera það sem við ætluðum að gera á einum einasta stað, eða svona fyrir utan ferðina í Ríkið en það er nú oftast einfalt :Þ
Tryggingastofnun heimtar að við komum með allar kvittanir frá árinu 2000 til að leysa út vinninginn okkar, Tannsinn var svo farinn snemma heim því það var föstudagur. Lentum nánast í slag við þjónustufulltrúana í KB-banka á Suðurlandsbraut, í guðanna bænum ekki fara með peningana ykkar til þeirra, þeir væru vísir til að týna honum !! Nenni ekki að rekja það hérna en ef það kemur eitthvað aftur upp ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA !!! *arghégervoðareið*
Fórum svo fórum við í IKEA að kaupa jólastöff en HEY whats up with all the ugly christmas stuff !! ég fann ekkert sem að mig langaði í og passaði heima :( er enn að leita að drauma jólaljósinu fyrir stofugluggann.
Þannig að allt í allt var bæjarferðin ekkert svaka success en jæja kemur næst :Þ
Í gærkvöldi var svo læri hjá mömmu og pabba og þau helltu Orra fullann, ég fæ alltaf að vera driver en ég driveaði mig bara eina heim því Orri fór að get2getherast með strákunum *hmmmm*
Í kvöld er það svo eitt stykki ammli, jahh eða reyndar 2in1 þar sem bæði Kristín og Andri eiga afmæli :Þ Andri þú færð örugglega enga gjöf þar sem hún var í höndum Orra og hann var ekki búin að kaupa hana síðast þegar ég vissi og ég efast um að hann fari fram úr rúminu áður en búðir loka í dag :Þ þannig ég skal gefa þér einn af stöku sokkunum mínum og þú getur búið þér til brúðu.
En jæja eníhú er í vinnunni mygluð as hell, ómáluð með skítugt hár geispandi og of löt til að læra, ég þarf alvarlega á björgun að halda !! Af hverju heimsækir mig aldrei neinn í vinnuna, ég er meirihlutann af tímanum ein og heng í tölvunni !! Ég auglýsi hér með eftir einhverjum til að koma og halda mér smá félagsskap í staðinn skal ég bjóða upp á kalt vatn og kanilsnúða.

3 comentarios:
Oh ég skal koma ef ég fæ kanilnúð - keypti mér einmitt einn i dag:P En það var gaman að fá ykkur í gær músí;)
ef þú værir einhvern tíman að vinna þegar ég er í skólanum þá kæmi ég pottþett að heimsækja þig í hádeginu! :)
en þú vinnur víst ekki virka daga, fyrir utan það að það er örugglega nóg að gera í hádeginu... :(
hehe ég er reyndar að vinna á morgun :Þ og það er ekkert að gera í hádeginu nema kannski það að ég fæ mér að borða :Þ
Eníhú takk fyrir laugardagskvöldið, það var mjög gaman :D
Publicar un comentario