Fyrir 3 dögum síðan var ég ekki byrjuð í prófunum en en í dag er ég búin með helminginn og ég veit ekki hvort ég á að vera fegin eða leggjast í gólfið og grenja :S :Þ Prófið í dag fór ekki alveg eins og ég hafði vonast til, ég og kennarinn höfðum greinilega MJÖG ólíkar hugmyndir um það hvað væri merkilegt, mér fannst bókmenntaSAGAN en svo var prófið bara í allt öðrum dúr sem sagt bókmenntaFRÆÐI -ifuknowwhatImean-
En jæja bannað að svekkja sig eftir próf og ég ætla ekki að gera það heldur :Þ
5 dagar í næsta próf og 8 dagar í próflok !! þetta verður (vonandi) liðið áður en ég veit af ... eða samt ekki, á þessum tíma þarf í líka að ná að kaupa allar gjafir og undirbúa og pakka öllu fyrir ferðina :S þvo, pakka, finna jólaföt :S ohhh stundum væri gott að búa enn hjá mömmu og pabba :Þ Á morgun eftir vinnu ætla ég svo heim til mömmu í sörubakstur :Þ fyrsta skipti sem við gerum svona en mér finnst þær ógó góðar :Þ var mjög dugleg við að borða þær þegar ég vann í bakaríinu í denn, aumingja kúnnarnir hafa bara fengið hálf box :Þ
Bueno, er í vinnunni og leiðist alveg guðdómlega mikið ! eftir 3 alveg útúrtjúnaða stress daga þá er ég bara alveg orkulaus + ég svaf varla í nótt :S Ég ætla svo að kúra mig snemma upp í rúm í kvöld og lesa Harry Potter ..... á það alveg skilið !

3 comentarios:
úff, ég finn líka fyrir því að jólin eru að nálgast, stressið læðist hægt og rólega að mér... sérstaklega þar sem ég var að kveikja á því að ég er ekki búin að senda neitt til ítalíu en þá og það tekur póstinn dálítinn tíma að komast til skila fyrir jól - ekki það að ég treysti ítölsku póstþjónustunni, borga frekar aukalega fyrir DHL.
Best er að gráta þessi próf eftir að maður hefur fengið einkanirnar, þ.e. ef að þær eru eitthvað til að gráta yfir ;o) Ég vona að þér gangi vel með restina, vertu bara jákvæð og lærðu með bros á vör, þá kemur þetta allt saman, best að taka þetta bara á coolinu ;o)
Ég öfunda þig ekkert smá af sörunum, nammi nammi, þær eru ógó góðar :o) En ég hugsa til þín, þessa 8 daga sem eftir eru hjá þér, kiss og knús (",)
hehe ég hef sko ekki gert fjölskyldunni minni þann grikk að senda þeim eitthvað minnug þess þegar ég eyddi heilum degi á pósthúsinu úti til að fá pakka frá mömmu og pabba ! þvílíkt vesen
En ég er hætt að hugsa um þetta próf, það bara kemur þegar það kemur og ég ætla ekkert að vera að svekkja mig :*
Publicar un comentario