skip to main |
skip to sidebar
1 dagur í 1.próf - 11 dagar í próflok
Það er nú meira hvað lífið verður sorglegt þegar prófatíminn kemur :S og þá þarf bæði lítið til að gleðja mann og lítið til að pirra mann.
Pirringur:
- Má ekki borða á Hlöðunni (lætur mig vilja vera heima)
- Vond fýla heima (nágrannarnir í kjallaranum byrjuðu að brassa eitthvað kl. 5 í nótt. Mér finnst fátt ógeðslegara en að vakna með steikingarfýluna í nefinu)
- Bíllinn er að bila (again)
- Ég er búin að hnerra skrilljón sinnum í morgun (vont þegar maður er á Hlöðunni)
- Ekki hægt að fá almennilegt vatn hérna :S mér til mikillar mæðu fjarlægðu þeir góða kranann sem var í kaffiteríunni, why ???
Glaðningur:
- Ég á Ópalbrjóstsykra frá því í gær :)
- Ég komst aðeins í Kringluna í gær og plöggaði 1 jólagjöf, seríum og svo keypti ég í matinn (sem var mjög nauðsynlegt þar sem allt sem var í ísskápnum heima var útrunnið og myglað)
- Ég er ekki að vinna næst fyrr en á mánudaginn (og þá verð ég búin með helminginn af prófunum mínum :D)
- Prófin byrja á morgun (já það er gleðiefni því að því fyrr sem þau byrja því meira styttist í það að þau séu búin)
Já svona er lífið einfalt þessa dagana, vakna 7:15, koma upp á Hlöðu
8:15, sitja fram eftir öllum degi, borða, æfa, sofa !! og svo reyni ég að troða eins miklum upplýsingum og hægt er í grautinn minn þarna upp. Hann er orðinn yfirfullur af pronombres, sögnum og spænskri bókmenntasögu :S
2 comentarios:
Takk fyrir kringluferðina í gær :) Nýji bolurinn minn er orðinn ennþá flottari, hann var svo plain að ég keypti smá skraut í dag og saumaði á hann og núna er hann fullkominn :D Eru það svo ekki útsölurnar næst???
ó já það verður farið á útsölurnar í janúar, ég er algjörlega fatalaus !!
Publicar un comentario