Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér við að slæpast og nenna ekki að læra að ég hef bara engann tíma haft til að blogga *roðn* æ smá lesleiði í gangi hérna :Þ
Helgin var æðisleg, föstudagskvöldið náttúrulega frábært eins og ég var búin að minnast á en svo var laugardagskvöldið alveg æði. Við vorum á Hótel Geysi með allri föðurfjölskyldunni minni að fagna 75 ára afmæli ömmu og 50 ára brúðkaupsafmæli ömmu og afa :D Það var ekkert smá kósý að vera þarna og ég verð að viðurkenna að núna hlakkar mig enn meira til jólanna af því þetta er nú svona jólasvæðið mitt :Þ Alltaf á Þorláksmessu, þegar við erum í bústaðnum, þá förum við "The Golden Circle" SAMA HVAÐ ! síðast þá fórum við í 20 stiga frosti og vinda :S
Ég var alveg skuggalega dugleg áðan og hjólaði í gymmið og tók klukkutíma brennslu .... eeennnn svo kom ég heim og er síðan þá búin að vera að hakka í mig nammi : / já svona er lífið þegar Orri er að vinna :Þ enginn til að hafa hemil á mér :Þ
lunes, 7 de noviembre de 2005
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

4 comentarios:
Hvað er að því að verðlauna sig eftir góða ferð í gymið með smá nammi ??? ;o)
En já ég er líka farin að fá smá jólafíling, langaði mikið að setja upp jólaljós um helgina, veit ekki alveg afhverju :os hehehehe
Gangi þér vel í "lærdómnum" knús og bestu kveðjur Bekka
hey ég var að reyna að kommenta á síðuna þína í gær en alltaf þegar ég reyndi að vista kommentið þá fékk ég bara að service væri ekki available :S vona að það sé komið í lag
og hey þetta var sko ekkert smá nammi og ég toppaði þetta með því að borða svona heilann 100 gr daimkúlupoka í morgunmat :Þ
Bjóddu mér bara í heimsókn og ég skal gera mitt besta til þess að passa þig, t.d. með því að borða helminginn af namminu :) Annars er smá verkefna geðveiki í gangi í augnablikinu ásamt vinnu og jólaballi þannig að það er lítill tími fyrir OC fyrr en í des :(
hehe jæja þá setjum við bara OC maraþonið á frest fram í janúar :Þ Þetta fer hvort sem er ekki neitt :D
Publicar un comentario