lunes, 7 de noviembre de 2005

voða lítið

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér við að slæpast og nenna ekki að læra að ég hef bara engann tíma haft til að blogga *roðn* æ smá lesleiði í gangi hérna :Þ Helgin var æðisleg, föstudagskvöldið náttúrulega frábært eins og ég var búin að minnast á en svo var laugardagskvöldið alveg æði. Við vorum á Hótel Geysi með allri föðurfjölskyldunni minni að fagna 75 ára afmæli ömmu og 50 ára brúðkaupsafmæli ömmu og afa :D Það var ekkert smá kósý að vera þarna og ég verð að viðurkenna að núna hlakkar mig enn meira til jólanna af því þetta er nú svona jólasvæðið mitt :Þ Alltaf á Þorláksmessu, þegar við erum í bústaðnum, þá förum við "The Golden Circle" SAMA HVAÐ ! síðast þá fórum við í 20 stiga frosti og vinda :S Ég var alveg skuggalega dugleg áðan og hjólaði í gymmið og tók klukkutíma brennslu .... eeennnn svo kom ég heim og er síðan þá búin að vera að hakka í mig nammi : / já svona er lífið þegar Orri er að vinna :Þ enginn til að hafa hemil á mér :Þ

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Hvað er að því að verðlauna sig eftir góða ferð í gymið með smá nammi ??? ;o)
En já ég er líka farin að fá smá jólafíling, langaði mikið að setja upp jólaljós um helgina, veit ekki alveg afhverju :os hehehehe
Gangi þér vel í "lærdómnum" knús og bestu kveðjur Bekka

Íris dijo...

hey ég var að reyna að kommenta á síðuna þína í gær en alltaf þegar ég reyndi að vista kommentið þá fékk ég bara að service væri ekki available :S vona að það sé komið í lag

og hey þetta var sko ekkert smá nammi og ég toppaði þetta með því að borða svona heilann 100 gr daimkúlupoka í morgunmat :Þ

Anónimo dijo...

Bjóddu mér bara í heimsókn og ég skal gera mitt besta til þess að passa þig, t.d. með því að borða helminginn af namminu :) Annars er smá verkefna geðveiki í gangi í augnablikinu ásamt vinnu og jólaballi þannig að það er lítill tími fyrir OC fyrr en í des :(

Íris dijo...

hehe jæja þá setjum við bara OC maraþonið á frest fram í janúar :Þ Þetta fer hvort sem er ekki neitt :D