martes, 22 de noviembre de 2005

ready or not here I come

Það er einhver veginn þannig að þegar líður að prófum þá verða bloggfærslurnar alltaf svona hálfaumingjalegar ... maður hefur ekkert að segja nema e-r hérna hafi áhuga á að hlusta á mig babla um sögu tónlistar á Spáni á 20. öldinni ... nei hélt ekki :Þ
En það er semsagt kominn í mann smá próffílingur og maður er að gera sér grein fyrir því að önnin er sama sem búin ! og manni fannst hún varla vera byrjuð ! Ég hefði ekkert á móti því að spóla bara mánuð fram í tímann og vera bara búin með prófin og mætt upp í bústað :Þ Annars er ég að fara að skella mér í hið hroðalega kjallaravax á eftir :0 fór þarna einu sinni í ágúst eða september svo það er alveg kominn tími á þetta aftur :Þ En eitt svona að lokum, það er ekkert smá fyndnar og sniðugar myndir á síðunni hennar Maríu :Þ www.blog.central.is/lummur Hérna er smá preview :D bara svona fyrir þá sem vilja sjá eitthvað skemmtilegt í lestrarpásunni sem ég giska að þið séuð í :Þ

4 comentarios:

Anónimo dijo...

hehehe ég er semsagt í lestrarpásu einmitt núna ;o) Góðar myndir, merkilegt að þessi frumlegheit hafi ekki komist utan á stóru gulu bílana hérna á Íslandi :o)

Íris dijo...

hehe já akkúrat

Anónimo dijo...

Aldrei að vita nema það myndi ýta undir fólk að taka strætó, alveg myndi ég vilja fara í þessa strætóa, sérstaklega þennan með hákarlinum :)

Íris dijo...

hehe já mér finnst líka ekkert smá sætur litla rútan sem er máluð á þessa stóru