martes, 29 de noviembre de 2005

próf eru ekki mitt thing

Jæja þá er þessi törn svona eiginlega búin, eftir að hafa skipt 3 eða eiginlega 4 sinnum um ritgerðarefni þá kláraði ég hana loksins í gærkvöldi og ég er eiginlega bara búin á því eftir það :Þ Svo var próf í morgun í Ritþjálfun og vá, ég algjörlega klúðraði því, það var samt ekki af því að ég lærði ekkert fyrir það, það hefði ekki breytt neinu :S Jólin eru aðeins farin að kitla mann og ég er komin með 1 jólaskraut :Þ Mamma gaf okkur aðventukrans svo ég kveikti á fyrsta kertinu í gær ... ég veit það var ekki sunnudagur í gær :Þ ég var bara ekkert heima á sunnudaginn til að hafa kósý svo það má alveg hliðra smá til :Þ Skólinn er bara að klárast þessa dagana, ritgerðarskil á morgun og síðasti tíminn í sögunni og bókmenntafræðinni. Á fimmtudaginn er svo munnlegt próf í Málnotkun :S Ég er svolítið stressuð fyrir það, sérstaklega af því að ég sendi inn þau 3 efni sem ég vildi fá að tala um, kennarinn velur svo 1. En málið er að ég man ekki nema 2 af þeim og það er alveg týpískt að hann velji þetta þriðja sem ég man ekki hvað er :Þ Úff ég er svvvooo þreytt af því ég svaf nánast ekkert í nótt, sofnaði ekki fyrr en 3 og var svo alltaf að vakna því ég var svo hrædd um að sofa yfir mig því ég þurfti að vakna kl.8 :S Þannig ég var kolrugluð í allan morgun alltaf að hrökkva upp og líta á klukkuna og svo loksins þegar hún hringdi þá slökkti ég á henni því ég hélt að það væri eitthvað allt annað að hringja ... já svona er maður crazy á morgnana

No hay comentarios.: