jueves, 3 de noviembre de 2005

NIA nnníííííaaaaa

Það er einhver undaleg bloggleti í gangi hjá mér þessa dagana. Ég var klukkuð um daginn og ég er búin að vera að reyna að hugsa um einhver svör við þessu en mér hefur enn ekkert dottið í hug svo þetta verður ekki klukkblogg eeeennn annars að öðru... Ég skilaði loksins þessari bjálfaritgerð :S og er hætt að hugsa um það, ég og Kolla fengum 7,5 :D fyrir fyrstu ritgerðina okkar á spænsku :Þ Gott teamwork hér á ferð : ), ég er búin að þjást af ofþreytu frá því snjórinn kom og tekst ekki fyrir nokkra muni að vakna fyrir 10 sama hversu snemma ég fer að sofa semsagt fyrr að sofa = ég sef bara lengur : / mig hefur líka langað í kjöt alveg frá því það fór að snjóa, mjög skrítið og rétt í þessu var ég að torga 4 hamborgaranum þesa vikuna !!! Það eru fleiri en ég hef borðað allt árið ! Mest niðurlægjandi moment lífs míns tóku nýjum hæðum í dag, ja fyrir utan það þegar ég flaug næstum því á hausinn fyrir utan HÍ í gær eeeennnn alla veganna þá skellti ég mér í e-n nýjan tíma upp í Laugum í dag, heita NIA minnir mig ooooggg ég var EINA manneskjan sem mætti + kennarinn :Þ Það í sjálfu sér var reyndar fínt því þetta voru nú meira funkífurðu æfingarnar ! Ég var á fullu að láta útlimina mína hreyfast eins og sjal ! og því bara fínt að vera einn þar sem ég er algjörlega ekki gerð til þess að hreyfa mig svona eeennn þar sem ég var í miðju hláturkasti af því ég sá sjálfa mig í speglinum þá koma inn tveir HOT einkaþjálfarar og þeir svo svo þarna inni restina af tímanum 20 MÍNÚTUR !!! Hmm ég hefði kannski frekar bara viljað fljúga almennilega á hausinn fyrir framan HÍ í gær og sleppa þessu :Þ hehe æ nei ég lifði þetta alveg af en ég svo sver það ég gat varla haldið í mér hlátrinum allan tímann þar sem ég þurfti til dæmis að hrista á mér brjóstin :Þ og svo seinna rassinn :S :Þ og já það var á meðan þessir tveir gæjar þarna voru inni :D En annars frábærir tíma og ég ætla að mæta aftur :D En ég verð eiginlega að minnast á hárið á mér *arghhhhh* hvernig datt mér í hug að klippa það stutt !! Það hefði nú verið svona OK ef ég hefði ekki fengið mér permanett fyrir svona 3 mánuðum síðan sem bókstaflega kom í ljós um leið og hárið á mér var stytt !! nono fékk ekkert permanett fyrr en daginn sem helmingurinn af hárinu á mér fauk af og núna lít ég út fyrir að vera með krúttlega álf á hausnum á mér :S Æ fjandinn þetta vex og næst þegar ég fæ svona heimskulega hugmynd, plís plís !! einhver að gefa mér selbit í hausinn !
Ég kveð og svíf í burtu eins og sjal í vindi *yeahright*

4 comentarios:

Anónimo dijo...

heyrðu, er ánægð með breytinguna á síðunni... og hefði ekkert á móti því að vera fluga á vegg í þessum tíma hjá þér hahaha
en heyrðu plöggaðu nú mynd af þér hérna inn til sýna hárið svona fyrir þá sem sá þig svo sjaldan :(
Selma Sól

Anónimo dijo...

Sammála, trúi ekki að hárið á þér sé svo slæmt, vil fá mynd :o)
Með tímann þinn í WC, bara fyndið, gaman að hlægja af svona uppákomum eftir á ;o)

Íris dijo...

haha já mér fannst þetta voða fyndið í gær en ekki eins mikið í dag þegar ég er farin að finna fyrir eftirköstunum af þessu ævintýri ! ég get varla gengið :Þ

hey svo skal ég reyna að finna e-a mynd af þessu strýi mínu, e-a samt þar sem ég er búin að slétta það :Þ hitt gæti bara hrætt ykkur ;)

Anónimo dijo...

Mér finnst hárið á þér flott! en vá..ég hefði ekki meikað að vera ein með kennaranum...shiiit