Ást mín á bókasöfnum er endalaus og hefur verið til staðar frá því ég man eftir mér lesandi. Mamma vill meina að ég hafi kennt sjálfri mér að lesa á viku.
Að fara inn á safnið og finna kyrrðina og allar þessar bækur ... hafsjór af fróðleik og endalausum mómentum þar sem maður kúrir upp í sófa með bók og flísteppi. Líka ótrúlegt að á bókasöfnum geti maður fengið nánast hvaða bók sem er og maður borgar kannski bara 1000 kall á ári og hefur ótakmarkaðann aðgang, mér finnst það bara aðdáunarvert.
Þegar ég var lítil og í grunnskóla þá gerði ég það reglulega að taka bækur á bókasafninu þar, það muna allir sem voru með mér í skóla eftir Birni bókasafnsverði :D en allaveganna, þá labbaði ég alltaf heim lesandi, ég gat ekki beðið með það að byrja þangað til ég kæmi heim svo ég hef verið ansi undarlegur krakki og bara heppin að enginn keyrði á mig :Þ Þegar ég var svo svona 9 ára þá fór ég það sumarið á bóksafnið nánast annan hvern dag af því ég mátti bara taka 3 bækur í einu, það vakti greinilega athygli einhverrar afskaplega góðrar bókasafnskonu og ég fékk fljótlega að taka mun fleiri bækur í einu mér til mikillar gleði :Þ
Eftir því sem ég eldist þá minnkar ást mín á bókum ekki neitt þó að smekkurinn hafi óneitanlega breyst. Eftir að hafa lesið allar Fimmbækurnar og Ævintýrabækurnar, Gunnubækurmar og Frank og Jóa bækurnar og líka Nancy bækurnar þá tóku við gelgjubækurnar og ég svelgdi þær í mig alveg eins og allar hinar. Í jólafríinu 2003 las ég á viku 5 bækur eftir Arnald Indriðason, heppin af því að þær voru ansi vinsælar í þeim íslenskuáföngum sem ég tók önnina eftir :Þ Um sumarið 2004 las ég svo allar 5 Harry Potter bækurnar á viku !! geri aðrir betur. Eftir það tók við Da vinci lykillinn en sá lestur stóð nú bara yfir í rúman sólarhring :Þ
En eftir að ég byrjaði í háskólanum þá hef ég ekki samviskubitslaust getað tekið upp bók sem MIG langar að lesa því þá stara alltaf skólabækurnar á mig með sakandi augnaráði til að minna mig á það að ég sé nú komin svolítið á eftir í sögu og sú bók ætti nú frekar að vera fyrir framan mig .... EEEENNN nú ætla ég að breyta þessu og taka smá forskot á sæluna fyrir jólafríið, ég skellti mér á Borgarbókasafnið áðan og krækti mér í 4 gersemar, Kleifarvatn, Harry Potter nr.6, 101 dagur í Bagdad og svo tók ég reyndar líka fyrir forvitnissakir Konur sem hugsa um of :Þ af því ég hef fengið að heyra það að ég hugsi stundum einum of mikið :Þ
Þannig að ef að ég hverf skyndilega og mæti ekki í prófin eða eitthvað þá hafa bækurnar endalega gleypt mig.
martes, 29 de noviembre de 2005
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

7 comentarios:
Gott hjá þér lestrarhesturinn þinn, mér líst vel á þetta forskot hjá þér, ég ætla svo sannarlega að njóta þess að lesa einmitt " eitthvað sem mann LNAGAR að lesa" yfir jólin :o) En góða skemmtun, láttu mig svo vita hvernig Kleifarvatn er, langar svoldið að glugga í hana.... :o)
kleifarvatn er mjög góð! ég elska líka bækur, fór einmitt á bókasafnið um daginn því að mamma var farin að væla í mér um nýtt lesefni (af hverju fer hún þá ekki sjálf á bókasafnið???) En ég asnaðist til að byrja á einni bók... ég fór að sofa kl rúmlega 2 þá nótt. Og kláraði hana á miðnætti kvöldið eftir. ég hef ekki lesið síðan þá en það bíður mín mjög girnilegur bókasafns poki sem ég ætla að kíkja í á fimmtudaginn :D
ég var að vakna ... eftir að hafa kúrt mig upp í sófa með Kleifarvatn. Ég get víst kennt þessum 4 tíma svefn sem ég fékk í nótt um það :Þ
En Kleifarvatn byrjar vel, ég er orðin svona frekar fersk af Erlendi og hans töktum, var búin að lesa einum of mikið af honum þarna um jólin :Þ
Þú ert ótruleg (a fljót að lesa) goggi gír
Íris þú ert algjör rassgatarúsína og ég elska þig útaf lífinu;):*
Íris þú ert algjör rassgatarúsína og ég elska þig útaf lífinu;):*
takk María mín :* sömuleiðis
Publicar un comentario