- Fólk sem að leggur bílunum sínum í fleiri en 1 stæði !! Sérstaklega óþolandi upp í HÍ og maður er að verða of seinn í tíma og öll stæði full því þá eru alltaf nokkrir asnar sem virðast alltaf vera á ógeðslega dýrum bílum og nota það sem afsökun að þeir eru hræddir um að e-r rekist utan í bílinn þeirra .... hey ef bíllinn þinn er svona svaka flottur hafðu hann þá bara heima þá rispast hann aldrei !!!
- Opna skápa og skúffur, bara verð að loka þeim.
- Þegar fólk bankar í dót í takt við tónlist eða enga tónlist
- Þegar fólk gnístir tönnum
- Fólk sem að reykir alveg við innganga og maður þarf að labba í gegnum skýið á leiðinni inn/út
- Stafsetningarvillur - mínar og annarra (hvernig í fjandanum skrifar maður annarra?? tvö r??)
- Þegar ég sef yfir mig
- Þegar fólk setur klósettsetuna ekki niður, brr vill bara hafa klósettið lokað !
- Þegar fólk treðst í biðröðum
- Þegar fólk sem að hefur ekki rétt til þess leggur í fatlaðrastæði
- Þegar fólk svarar ekki í símann sinn og ég VERÐ að ná í það
- Þegar ég fer með bílinn á verkstæði og það er komið fram við mig eins og hálfvita af því ég er kvenkyns !! Það segir mér enginn að öryggi í bílum sé til þess að springa um leið og rúðuþurrkumótorinn bræðir úr sér !! ASNI !!
- Fólk sem gefur ekki stefnuljós áður en það ætlar að beygja eða er á leiðinni út úr hringtorgi
- Þegar strætó kemur/fer ekki á þeim tíma sem að áætlunin segir
- Þegar fólk kemur ekki og lætur ekki vita *grrr*
- Þegar fólk er á móti fólk sem er af öðrum kynþáttum og býr á Íslandi!! Mér er alveg sama hvað er sagt þetta fólk má alveg vera hér eins og allir aðrir, alveg eins og ég ætlast til þess að geta flutt til annarra landa og búið þar
- Fólk sem þykist vita ALLT !!
- Þegar útlendingar sem tala ekki ensku koma hingað á Sunnu og tala bara stanlaust við mig á sínu móðurmáli og verða fúlir þegar ég skil þá ekki .... þetta á sérstaklega við um Frakka og Þjóðverja :Þ
- Fólk sem er tapsárt og reynir að svindla *hmmm*
- Þegar ég neyðist til að eiga smalltalk við fólk sem mér líkar ekki einu sinni við !
- Þegar það er lítill bíll við hliðina á stórum bíl í stæði og maður heldur að stæðið sem að litli bílinn er í sé laust alveg þangað til maður kemur framhjá þessum stóra (stórt vandamál í HÍ :Þ)
hehe er þetta ekki bara komið nóg :D nú get ég farið brosandi út í daginn :*

4 comentarios:
Hihi anda inn anda út:P Nei ég er mjög svo sammála þér í mörgu af þessu - sérstaklega með klósettsetuna, fatlaðrastæðin og að fólk sé að pirra sig á útlendingum sem hafa flutt hingað..allir sem ég hef kynnst hingað til eru algjör yndi og miklu duglegra en Íslendingar í vinnu og hananú:P
hahahahahahahahahahahahahaha :o) þetta er snilld hjá þér, ég held að ég sé bara sammála þessu öllu saman, sérstaklega þessu síðasta, ég get gjörsamlega fengið í pirrurnar, loksins þegar maður heldur að maður hafi fundið laust stæði og svo er bara einhver smábíll þar, fyrir, í felum við hliðin á "stórum jeppa" ég held að þetta sé vaxandi vandamál hér ;o)
hehe, ég held að minn bíll sé oft þessi litli bíl, ég legg alltaf svo innarlega í stæðið og er svo í vandræðum með að finna hann ;)
Annars er ég algjörlega sammála þessu með flottræflana á bruðlbílunum sínum sem eru svo fínir að þeir eiga skilið 2 stæði, ekkert smá pirrandi. Og stefnuljósin, sérstaklega á hringtorgum þar sem það er röð af bílum að bíða eftir því að fara inn í hringinn.
Og talaru ekki bara íslensku við þessa útlendinga??? ég held að það sé besta ráðið. Taka bara regluna um það að haga sér eins og maður vill að aðrir hagi sér við mann sjálfan og snúa henni við :)
haha já ég ætti kannski að reyna það :Þ tala bara íslensku og sjá hvort þeir fatti ekki hvað þeir eru að gear :Þ
Publicar un comentario