martes, 15 de noviembre de 2005

estoy cansada

Ég er stíf og stirð, síðustu 9 klukkustundirnar hef ég varla staðið upp nema til að borða, mér er illt í bakinu, fótunum og hausnum og meira segja augunum og afrakstur dagsins er líka ekki lítill :D En vá hvað það er þreytandi að læra, ég er bókstaflega búin á því *geispgeispgeisp* Ég fór í gær á mörgæsamyndina, The march of the penguins held ég að hún heiti, oggg mér fannst hún æði :D Ekkert smá sætar og alveg ótrúlegt hvað þær leggja á sig til að eignast unga ! En jæja ég held ég fari og stari út í loftið þangað til ég fer að sofa eða bara stari á sjónvarpið

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Þú sýnir mér so sannarlega gott fordæmi með þessu. Núna ætla ég að vera ógó dúleg að læra líka og dagurinn sem ég hef ákveðið að fórna mun vera föstudagur:) Þú ert fyrirmyndin mín núna skólalega séð... hehe :)

Anónimo dijo...

hey, ég fór á mörgæsamyndina á sunnudaginn og hún er ÆÐISLEG, þessi myndataka er náttúrúlega bara rugl !