viernes, 25 de noviembre de 2005

æ þessi pólitík

Hahaha mér hefur alltaf verið illa við Chavez (forseta Venezuela) eftir að hafa - þurft að eyða lengri tíma innan dyra í útgöngubanni þegar landið var á barmi borgarastyrjaldar - þurft að horfa á hann synga (falskt) og gera allskyns bull í hvert sinn sem að hann rauf útsendingar allra sjónvarpsstöðva í Venezuela, - var líka ansi hrædd þegar hann sendi herþotur yfir Caracas til að ógna fólkinu sem bjó þar þegar hann var hræddur um að gerði yrði uppreisn og það nötraði allt og skalf í íbúðinni minni þegar þær flugu yfir húsið því þær flugu svo lágt ............ - já og milljón aðrir hlutir svo sem morð á saklausu fólki og spilling sem hafa gert það að verkum að hann er ekki on my good side .... en mér líkar verr við Bush og Chavez líkar líka illa við Bush og í dag las ég frétt í Mogganum sem kom mér til að hlæja og fyrirsögnin var "Öreigar í Boston fá olíu frá Venesúela" og greinin í stuttu máli: "Fátækt fólk í Boston í BNA mun framvegis geta keypt olíu til húshitunar við lágu verði frá fyrirtæki sem stjórnvöld í Venesúela reka .... Það er Citgo-fyrirtækið sem selur hinum fátæku olíuna en það er útibú ríkisolíufélags Venesúela í Bandaríkjunum....Samkomulagið var gert við hjálparsamtök í Boston en þingmenn bandaríska Demókrataflokksins komu einnig að gerð þess...Samkvæmt því munu fátækir íbúar Boston og samtök sem að vinna að því að lina þjáningar þeirrra geta keypt olíu til húshitunar á verði sem er um 40% undir markaðsverði.... Olíusalan er liður í áætlun , sem Hugo Chavez, forseti Venezuela, hefur samið og miðar að því að bæta kjör öreiga fólks í ríkjum Ameríku. Sendiherra Venezuela í BNA sagði að olíusalan væri í samræmi við "loforð" það, sem Chavez hefði gefið bandarísku þjóðinni" hehe æ þetta er þvílíka steypan, flott að hjálpa fátækum Bandaríkjamönnum en hvað með fátæku Venezuelana ! Því að svona býr það Ég efast um að Bush finnist þetta eins fyndið og mér :Þ kannski líka af því Chavez er góður vinur Castro :Þ Jæja en ég er mætt í vinnuna og það er nákvæmlega EKKERT að gera, engin að fara og enginn að koma og semstendur bara 1 gestur í húsinu fyrir utan alla fastagestina (mjög lítið ónæði af þeim) svo ég held ég fari bara að koma mér í það að læra smá :P

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Hahah mér finnst þetta nú frekar skondið:P Eeen ég var líka að vinna í dag;) - i fyrsta sinn síðan í ágúst!:/

Anónimo dijo...

Helvítis spilling alltaf í s-ameríku