jueves, 17 de noviembre de 2005

eintómt væl :Þ

Þetta er ekki alveg minn dagur, ekki út af neinu sérstöku beint, þetta bara er ekki minn dagur :S Ég held ég hafi sjaldan verið jafn tuskuleg, mygluð, úldin og þreytt eins og ég er núna : / Ég byrjaði daginn líka á að sofa yfir mig, btw þá átti ég ekki að mæta fyrr en 11 í skólann svo það er eiginlega bara afrek að hafa ekki vaknað :ÞEn ég vaknaði bara akkúrat 11 og náði að mæta í skólann og fara með þennan fyrirlestur sem ég þurfti að gera fyrir málnotkunina. Ég bara sef út í eitt þessa dagana og langar eiginlega mest til að liggja bara undir rúmi með hlýja sæng því að þá er ég alla veganna ekki að frjósa úr kulda ! Svo þoli ég ekki þessa birtu sem er úti, grábjart eitthvað, ég fæ bara hausverk og verð að vera inni með dregið fyrir gluggana :S Og það er það sem ég er búin að vera að gera í allan dag : / Já væli væli væli þetta verður liðið hjá eftir nokkra klukkutíma þegar það verður orðið dimmt :Þ svo ég ætla bara að leyfa mér að vera svona til 17:30 þegar við förum í mat til Maggýjar :Þ Við fáum líka kannski rafmagnsofn hjá henni og ég er svona að vona að það dugi til að hita aðeins upp hjá okkur því ég er bókstaflega alltaf að frjósa !! Ég sest ekki niður hérna heima án þess að vera vafinn inn í flísteppi *brrrr* Jæja ég ætla að fara að vola smá í Orra :Þ og fá mér kannski heitt kakó því mér er svo kalt á puttunum að ég get varla pikkað inn : /

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég skil þig svo vel, ég veit ekkert verra en að vera frjósa úr kulda á meðan ég er að læra, heilinn er ekki alveg til í að fúnkera þá, alla vega ekki hjá mér ;o)hehehehe
Ég held að svefnsýki og þreyta sé almennt að ganga þessa daganna ! Fjöldi fólks sem ég hef hitt, síðustu daga þjáist af þessu, sennilega er þetta bara skammdegið !

Anónimo dijo...

crap!!! er í alvöru svona ógeðslega kalt hjá ykkur... fúff þá skil ég alveg að þú sofir yfir þig :) Selma Sól