jueves, 10 de noviembre de 2005

7 hlutir hvað ?

Hmm núna hef ég verið kitluð í 3ja sinn þannig ég held ég verði bara að fara að svara þessu ! Sjö hlutir sem ég vil gera áður en ég dey: Búa í útlöndum í ár eða meira - aftur Fara á Interrail - það er nú in progress Fara í nokkurra daga göngu um hálendi Íslands eða Hornstrandir - þarf bara að æfa smá :Þ Vinna Orra í sjómann - það gerist víst seint :Þ Ná lagi inn á Billboard listann í BNA - þarf fyrst að hætta að vera svona laglaus Fara í Safaríferð og sjá ljón Læra blessuðu spænskuna almennilega Sjö hlutir sem ég get gert: Pikkað hratt inn á lyklaborð og sms Setið klukkutímum saman og lesið góða bók Gengið upp á Esjuna Verið afskaplega pirrandi skipulögð :Þ Borðað mikið nammi á stuttum tíma Gert lista af hlutum sem ég ætla ekki að gera fyrr en eftir MARGA mánuði : / Verið afskaplega feimin Sjö hlutir sem ég get ekki gert: Eldað Sungið Teiknað Þvegið fötin hans Orra þannig að þau séu ekki eins og harmonikka Vaskað upp Haft viftuna inni á baði í gangi án þess að verða crazy Snoozað með góðri samvisku Sjö hlutir sem heilla mig við karlkynið: Augun Hárið Bakið Brosið Heiðarleiki Metnaður (enga leti takk) Fyndni Sjö frægir sem heilla: nenni ekki að svara þessu :S dettur bara ekkert í hug :Þ Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna: Ipodinn Orra að læra Vatnskönnu og glas Umbúðirnar utan af súkkulaðikökunni sem ég ÁT Flísteppi Tölvuna hans Orra Tölvuna mína Jæja þá er þetta loksins komið :Þ og mér dettur bara enginn í hug til að klukka sem ég er sjor að sé ekki búin að þessu svo ég bara sleppi því líka :Þ Hmm voðalega hljóma ég eitthvað antipatica í þessu bloggi :Þ er annars í bara mjög góðu skapi

1 comentario:

Anónimo dijo...

interrail, gaman gaman!!! heyrðu já loksins kom að því að þú svaraðir þessu :)selma