martes, 11 de octubre de 2005

ZzZzZzZzZz

stefnur í arkitektúr á Spáni á 17. öld ZzZzZzZz hvernig á maður að halda athygli þegar þetta er viðfangsefnið ZzZ ........ En annars bara allt gott að frétta, ég og Kolla tókum þessa ritgerð bara á hörkunni og hún er núna bara meira og minna tilbúin, bara eftir svona smá púsl og snurfus. Ég er síðan búin að eiga bara mjög þægilegan dag hérna heima :Þ Sit bara og lesa og hleyp svo niður í þvottahús með svona 45 mínútna millibili og hendi í vél :Þ Orri var víst eitthvað að kvarta yfir því að hann ætti eitthvað lítið til að hreinum fötum svo ég svona gjóaði augunum yfir á óhreina tauið og ÓMEN hvernig verður allt þetta drasl svona fljótt óhreint ! en alla veganna 3 vélar komnar í dag og það stefnir í persónulegt met :D Mér finnst fátt meira kósý en að vera ein heima hjá mér :Þ kann svo vel að meta það að vera bara ALEIN ... með tölvunni minni :Þ en jæja þarf að hlaupa í þvottahúsið og svo bíður mín hérna gæða máltíð ... kínarúllur og franskar :Þ

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég hugsa að lífið gerist nú ekki betra en þetta, vera heima og hafa það kósý, lesa og þvo þvott ;o)

Íris dijo...

hehe já ég verð að segja að það er voða kósý. Þvotturinn kemur líka í veg fyrir það að maður sitji of lengi í einu og svo fæ ég fína hreyfingu út úr því að hlaupa upp og niður 4 hæðir með fulla þvottakörfu :Þ

Anónimo dijo...

hehe, brjálað að gera hjá kellunni bara ;)
hlakka til að sjá þig á föstudaginn
selma