domingo, 2 de octubre de 2005

smósý kósý

Úff mér er enn illt í maganum eftir allt nammið sem ég borðaði í gær : / Ég held að takmarkið með nammidögum sé ekki að borða einfaldlega 7faldan skammt af nammi ... ég á eftir að læra það :Þ Annars átti ég mjög kósý kvöld þar sem afraksturinn var 1 desperate housewives þáttur og þó nokkrir 24 :Þ og já ég fór allt of seint að sofa :S Í morgun þurfti ég svo að bruna inn í Hafnarfjörð áður en ég átti að mæta í vinnuna kl. 10 því elsku pabbi ætlar að skipta um bremsuklossa fyrir okkur handfatlafólin svo að bíllinn verði aftur ökuhæfur : O Það var ekki gaman að keyra og heyra bara svona stál í stál hljóð þegar maður bremsaði : / ekki mjög traustvekjandi :Þ En jæja ég er alla veganna einu sinni enn mætt í vinnuna , 10 tíma vakt í dag frá 10-20 :Þ er búin að vera nokkuð dugleg og er búin að læra allt sem ég þarf fyrir morgundaginn :Þ Já hver segir að það sé ekki gott að vera í vinnunni þegar það er EKKERT að gera :D

2 comentarios:

Anónimo dijo...

skemmtu þér vel í vinnunnní ;)

Anónimo dijo...

Veistu ég held að þú sért í drauma djobbinu ! Ég meina það að geta lært og halað inn pening á sama tíma, algjör snild :o)