Ritþjálfun I er að gera útaf við mig í augnablikinu þar sem ég er að reyna að klára eitt stykki stórskemmtilegt verkefni sem er svo loðið að það er að gera mig crazy :S
Þoli ekki verkefni með lélegum leiðbeiningum sem ég get svo ekki klárað þegar ég ætla að klára það af því ég skil ekki baun :( pirrpirrpirrpirrpirr
Heng ein heima því Orri er í Hfj á Hansen og ég ætlaði að læra svo mikið en það er greinilega ekki hægt : / ég held ég gefi bara skít í þetta allt og fari að horfa á Veronica Mars nýja uppáhaldsþáttinn minn :Þ OC virðist vera í fríi fram í nóvember hver svo sem ástæðan er fyrir því, One Tree Hill er bókstaflega leiðinlegt og ég er búin að horfa á nýjustu þættina í Lost og Desperate housewives + það að vera búin með ANTM seríuna .... OMG hvaðan fæ ég þennan tíma til að horfa á allt þetta drasl :Þ hmmmm ætti kannski frekar að vera að læra eða hreyfa minn feita rass :Þ
Við Orri vorum alveg ógeðslega dugleg áðan og hjóluðum í jóga ! Það hefur bara ekki gerst áður :Þ það var bara ótrúlega fínt og tók bara ekkert svo miklu meiri tíma heldur en ef við hefðum keyrt af því jógatíminn er á þessum umferðatíma :D en þetta var 3ji jógatíminn minn á 3 dögum ... mmm þetta er bara svo gott og svo fær maður svo skemmtilegar harðsperrur á undarlegustu stöðum eftir tímana :Þ
Hmm jæja þá er það annað hvort sagan San Manuel Bueno í bókmenntafræðinni sem ég þarf að skrifa ritgerð um á næstu vikunni :S eða bara elsku Veronica Mars, ætla aðeins að hugsa málið :Þ
miércoles, 19 de octubre de 2005
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Þú verður einhvern tímann að fara með mér í Jóga, ég þori ekki að prófa það ein :os Langar alveg gríðarlega að prófa það, vantar kjarkinn ;o) Hlakka til að sjá þig í kvöld skvís :o)
Publicar un comentario