jueves, 13 de octubre de 2005

minn endalaust kósý dagur :Þ

Ég er búin að eiga alveg frábæran dag :Þ svo gaman þegar maður á daga sem eru góðir út í gegn :D Ég vaknaði eldhress kl.8 og lærði aðeins fyrir prófið sem ég var að fara í kl.10 .... mætti í prófið og vona bara að mér hafi gengið sem best :S það gilti víst 20% og þetta voru bara 7 spurningar :S svolítið mikið að láta 2 heila af lokaeinkunn velta á 7 spurningum í hlustunarprófi ! en allaveganna þá vona ég bara að það hafi gengið fínt :Þ Svo fór ég bara heim af því ég nennti ekki í málfræði .... kennarinn les bara beint upp af glærunum sínum og mér finnst ég ekkert græða á þessum tímum. Þegar heim var komið tókst mér að sannfæra Orra um það að við ættum skilið að eiga smá dag fyrir okkur og dró hann með mér í Kringluna þar sem við keyptum föt á kappann ;) veitti ekki af, hann átti ekkert nema íþróttabuxur :Þ við vorum alveg búin á því eftir að fara í 4 búðir :Þ svo við fórum aðeins heim en planið var bara að borða og halda svo áfram með langa listann af hlutum sem við þurftum að gera ..... þegar við vorum komin heim spurði ég Orra hvort hann ætti ekki að fara í neina tíma í dag .... úps þá gleymdi hann víst voða mikilvægum tíma (ég að spilla honum :Þ) en þurfti að mæta í næsta svo það varð ekki meira úr dekurdeginum okkar :Þ en ég hélt áfram og omg ég veit ekki hvaðan ég fékk orkuna til að gera það sem ég gerði næst :S ég byrjaði á því að shæna baðherbergið svo fór ég leitaði að öllum flöskum sem við áttum og taldi þær allar í poka .... ég er sko búin að vera að safna kjarki í þetta í marga mánuði en hey þetta tók hálftíma :Þ svo tók ég og setti í vélina og eyddi svo restinni af deginum í að rífa úr skápum og henda og henda og henda .... vá ég held að þetta hafi bara verið jólahreingerningin .... Svo núna sit ég í svo fínni og hreinni íbúð :Þ svona nánast, ég er ekki alveg búin :Þ upp úr þessu hafði ég þó það að ég fann sundkort sem við eigum í Laugardalslaugina OG IPOD snúruna mína sem ég er búin að leita að síðan í júní !!! pabbi var meira að segja að koma heim frá útlöndum í kvöld og ætlaði að kaupa nýja fyrir mig en mér tókst að ná í hann :Þ Svo fórum við í mat til Maggýjar, æðislega grænmetissúpan :P og núna er Orri e-s staðar með Andra og ég nýt mín í botn hérna heima með kveikt á kertum, búin að gera svoooo mikið í dag og ætla að fara að horfa á Desperate housewives og Lost :Þ en svona fyrir þá sem vita það ekki þá er ekki tími hjá mér fyrr en þarnæsta mánudag .... mmmm SEMANA LIBRE mér líst vel á þetta :Þ hehe æ greyið þið sem nenntuð að lesa þetta, mig langaði bara að skrifa þetta niður svo næst þegar ég á lásí dag þá get ég lesið þetta og munað að það eru ekki allir dagar slæmir :Þ og svo litaði ég textann bleikann bara til að gera þetta verra ;)

3 comentarios:

Anónimo dijo...

gott að þú áttir góðan dag :)
ég einmitt orðin gráhærð hér í heima því hún Ingigerður er búin að vera svo pirruð í dag;)

Anónimo dijo...

Du ert so dugleg!!! Ég sem ætlaði að bjóða þér með mér í Kringlu og/eða Smáralind á morgun... ertu nokkuð búnin að fylla upp vikuskammtinn af búðarrápi? Var reyndar aðallega að stefna á windowshopping, kemur í ljós hvernig það gengur...

Anónimo dijo...

Dugnaðarforkur ! Til hamingju með að vera búin í prófinu :o) Er svo gott þegar þessu er lokið !