Mér leiðist !! Ég er eirðarlaus og mér leiðist .... ég veit reyndar alveg ástæðuna fyrir því en fjandinn hafi það MÉR LEIÐIST !! Mér leiðist svo mikið að ég get ekki einu sinni horft á Friends !! Það er alvarlegt !
Ég reyndar kláraði að horfa á seríu 4 í 24 .... úff maður. Mér skylst að það sé ekki byrjað eða búið að sýna hana hérna svo ég segi ekki meira .... en ég alla veganna grenjaði, mikið.
Ohh ég þarf að taka strætó í skólann á morgun :S minnz nennir því sko ekki .... En ég er að vera góð við Orra því hann er e-n staðar úti núna, þá þarf hann ekki að fara með mér í skólann svona snemma ... Það er naumast að maður er góðhjartaður !
Það eru ritgerðarskil hjá mér í einu fagi í næstu viku .... oooog ég er ekki byrjuð ! eða reyndar þá erum við ekki byrjaðar en það á að bæta úr því á morgun :Þ Ég ætla reyndar að vera góð við sjálfa mig og fara í augnbrúnavax á morgun (ohhh ég þoli ekki að skrifa þetta orð augnbrúnavax, ég veit aldrei hvernig á að skrifa það !!)
Næsta horror vax er svo 15.okt Ég og María ætlum aftur í það brasilíska .... Núna í minningunni þá var þetta ekkert svo slæmt og það var alveg þess virði svo ég ætla bara að halda í þessa draumaminningu mína fram að vaxinu :Þ
eeeeennnnn mér leiðist svo ég held ég fari bara að sofa ! úff vá hvað manni leiðist mikið þegar það skásta sem maður getur gert er að vera meðvitundarlaus :Þ
Gúdnæt
lunes, 3 de octubre de 2005
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Veistu vá hvað ég dáist að þér að þora í vaxið, ég gjörsamlega gæti ekki hugsað mér að prófa þetta :oS Hryllilega hrædd við þetta ! En ég vona að þér sé hætt að leiðast, gangi þér vel með ritgerðina og lesturinn. Knús, Bekka :o)
Krúttið mitt - það er svo leiðinlegt að láta sér leiðast :-( En ég er að spá í fjallgöngu 16. okt - Ármannsfell - kemstu með? Mamma :-)
Æi kjáninn þinn hringdu bara í mig næst þegar þig leiðist;)
Publicar un comentario