Loksins - Ég kláraði loksins að lesa þessa sögu ! þannig að nú get ég farið að pæla í ritgerðinni ... ég sé samt ekki fram á það að ég muni ná að klára hana fyrir sumarbústaðarferðina :S
Ég er algjörlega búin á því, ég skellti mér í þennan svakalega jógatíma í gær. Það er mjög langt síðan ég hef farið í svona erfiðan tíma, ég var eiginlega bara búin að gleyma því að jóga getur verið alveg svakalega erfitt ! Í alvörunni ég kom bara titrandi út úr tímanum eftir að hafa þurft að halda í armbeygjustöðu í lengri lengri tíma og svo halda á hlið bara með einni hönd ...... svona var þetta allan tímann ! oooogg þetta var svo gaman, ætla alveg pottþétt að halda áfram að mæta í þessa tíma, þarna fer þetta saman jóga og hörkuworkout.

Á fimmtudagskvöldið fórum við Rebekka á kaffihús :D Við höfðum sko ekki hist í eitt og hálft ár ! og svona þegar ég fór að hugsa um það þá man ég ekki eftir því að við höfum nokkurn tímann gert e-ð svona saman. Ég held að ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að hún sé með allra elstu vinkona mín, hófst allt þegar við vorum svona 8 ára og við vorum pennavinkonur :Þ
Annars er ég enn einu sinni komin í framtíðarkrísu ! Í augnablikinu er ég alla veganna búin að ákveða að taka 1 kúrs í sálfræði á næstu önn ofan á þá sem ég þarf að taka í spænsku og svo er ég eiginlega búin að ákveða að skipta aftur yfir í sálfræðina næsta haust, taka þetta bara á hörkunni með það að leiðarljósi (:Þ) að geta bara farið í e-ð ógurlega skemmtilegt framhaldsnám ! Svo verður spænskan bara svona eilífðar BA námið mitt :Þ æ maður má allaveganna pæla :Þ

5 comentarios:
Takk fyrir spjallið, var mjög næs að hittast og tjatta :o) Gangi þér vel með ritgerðina, hef fulla trú á að þetta takist fyrir sumarbústaðaferðina :o)
Það er alltaf gaman að pæla, ég geri mjög mikið af því. Verst bara hvað það er erfitt að komast að einhverri varanlegri niðurstöðu... Ég gæti reyndar gert það sama, farið í smá ítölsku og haft það sem svona eilífðarnám. Það hljómar ekki illa.
já koma aftur í sálfræðina, mér líst bara vel á það!
Annars hef ég nú verið að öfunda þig síðustu daga, það er svo mikið að gera núna hjá okkur, og þessi fög sem við erum í núna eru bara hreint út sagt leiðinleg! Ég væri til í smá spánskann arkitektúr!
já ég verð að viðurkenna það að spænskan er æði :D ætli þetta sé smá masókisti í mér sem meikar það ekki að vera nánast grenjandi daglega af stressi og pressu :Þ nei ætli það :D
Publicar un comentario