jueves, 20 de octubre de 2005

beilari

Ég beilaði á morgun á þessu brasilíska, ég vaknaði bara ekki í stuði til að láta pynta mig :P svo þetta verður bara að bíða aðeins lengur : ) Gærkvöldið fór bara allt öðruvísi en ég ætlaði, eftir að ég var búin að væla hérna þá talaði ég við Heiðu sem tókst að sannfæra mig um að koma inn í Hafnarfjörð og hitta hana. Orri og strákarnir voru á Hansen að kveðja Einar sem er að fara út (skilst mér :Þ) og af því ég ætlaði hvort sem er að sækja Orra kl. 1 þá kíkti ég bara í fjörðinn ... alltaf svo gott að koma þangað, er bara heima hjá mér í Hafnarfirði :Þ eeeennn í kjölfarið þá bara fór ég allt of seint og alltof sjúskuð að sofa :P Núna sit ég með hrúgu af dóti sem ég þarf að lesa og gera, klára ritþjálfunarverkefnið :S gera ritgerð í Bókmenntafræði og ég er búin að vera að lesa söguna sem ritgerðin á að vera um og díses ég verð marga daga með þessar 20 síður :S ég er búin með 4 ! svo eru 2 próf í næstu viku ! Það er eins gott að ég er á leiðinni úr bænum að fá smá afslöppun :Þ hmm jæja ég ætla að drífa mig í gymmið ...c ya

No hay comentarios.: