domingo, 16 de octubre de 2005

bara smá upplýsingar um mig

Nafn: Íris Systkin: Guðrún María 19 ára og Eydís 14 ára Augu: mógræn, Orri vill samt halda því fram að þau séu stundum gul :S Hæð: Ég slefa víst rétt svo upp í 160 Fæðingardagur og ár: 10. mars 1984 Greindarvísitala: ég er alveg örugglega einstök í hvora áttina sem er Stjörnumerki: Fiskur :Þ Uppáhalds ? Litur: Blár og fjólublár Matur: góðir grænmetisréttir eru alltaf æði, annars kjúklingabringur og fiskur Drykkur: Vatn Vatn Vatn og svo stundum smá Kristall + Þáttur: OC, Desperate housewifes, Lost og svo ANTM :Þ Bók: Hús andanna og Kryddlegin hjörtu, hef lesið þær báðar margsinnis Bíómynd: úff þessi er erfið Mér finnst bara öðruvísi myndir oft skemmtilegar, svona kvikmyndahátíðamyndir :Þ Vikudagur : Mér finnst alltaf voða gott þegar helgin er að koma, ætli ég segi ekki fimmtudagur (af því þessa önnina er ég ekki í tímum á föstudögum :Þ) Mánuður : Enginn sérstakur, mér finnst e-ð gott og spes við þá alla Hefurðu einhvern tíma..... Strokið að heiman? nei ég bara held ekki Valdið einhverjum ástarsorg? úff ég hef ekki hugmynd, ekki svo ég viti til alla veganna Verið ástfangin? óJá er það núna Grátið þegar einhver deyr? já Langað í einhvern sem þú veist að þú getur ekki fengið? já geri stundum svoleiðis vitleysur Brotið bein? nei ég hef bara ekki brotið eitt einasta bein 7-9-13 Logið? já held að allir hafi einhvern tímann logið Trúirðu á...... Ást við fyrstu sýn? nei ekki beint, kannski skot við fyrstu sýn Guð? nei ekki enn Skrímsli? nei Stjörnuspár? guð nei meira bullið Geimverur? gætu alveg verið til Drauga? Orri kom einu sinni með góðan punkt sem að læknaði mig nánast af myrkfælninni: ég ætti bara að vera ánægð ef ég sæi draug því þá væri ég búin að fá sönnun fyrir því að það væri eitthvað eftir dauðann .... en ennþá hef ég ekkert séð :Þ Hvort er betra? Coke eða Pepsi? ojjjj bæði viðbjóður :S Sprite eða 7-Up? þarf ég að segja það :S Strákar eða stelpur? strákar, alltaf strákar Blóm eða nammi? nammi...... Hávaði eða næði? Little bit of both, svona eftir skapinu Sundlaugar eða heitir pottar? Best að geta gert bæði, fyrst í pottinn svo í laugina og svo aftur í pottinn Buxur eða stuttbuxur? buxur Hitt kynið......... Hverju tekurðu fyrst eftir? Augum Sítt eða stutt hár? æi alveg sama ef að það er bara snyrtilegt Göt einhversstaðar? nei helst ekki Hver..... Fær þig til að hlæja mest? hehe það hlýtur að vera Orri Fær þig til að brosa? þarf nú ekki mikið til Er skotinn í þér? ætla rétt svo að vona að það sé Orri :Þ Hefurðu einhvern tíma............... Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina? E-n tímann gerði ég svo heimskulegan hlut já, biðin reyndist svo sannarlega ekki vera þess virði Óskað þess að þú værir önnur en þú ert? Já það hef ég líka gert Óskað þess að vera karlmaður? jájá, var svo fast bara einu sinni í mánuði þegar ég lá grenjandi uppí rúmi vegna verkja :Þ Óskað þess að líta öðru vísi út?? jebb Grátið vegna einhvers sem hefur verið vondur við þig? ójá Myndirðu giftast vegna peninga? nei það held ég nú ekki Plokkaru augnbrúnirnar? nei ég er svo mikil dekurrófa að ég fer bara og læt vaxa :Þ svo þægilegt Hver er uppáhaldsávöxturinn þinn? mmm ber ber ber, kiwi, perur, æ og svo margir fleiri Hver er uppáhalds staðurinn þinn? Það eru svo margir en eftir hringferðina í sumar þá á ég nokkra alveg spes hér og þar um landið Dreymir þig í lit eða svarthvítt? held í lit, mig dreymir alla veganna nógu crazy drauma Manstu fæðingu þína? nei guði sé lof það er ekki eitthvað sem ég myndi vilja muna Hvort líkar þér betur við sólsetur eða sólarupprás? sólarupprás mér finnst svo æðislegt að byrja daginn Hvort finnst þér betra að hafa slökkt eða kveikt á ljósunum þegar þú horfir á sjónvarpið? ha horfa á sjónvarpið hvað er það Færðu martraðir? Margoft, búin að fá tvær í þessari viku, voru báðar eitthvað um mafíu og morð ! :S Finnst þér nefið á þér fallegt? nei ekki svona þegar ég pæli í því Hlustaru á tónlist daglega? já alveg örugglega Hvað áttu mörg skópör? alveg heilan helling en nota samt fá og hef ekki keypt mér ný í svolítið langann tíma Notarðu sömu skóna á hverjum degi? nei ég er eiginlega með tvenn pör sem ég svona skiptist á að vera í, það er bara þægilegt að ganga mikið í öðru parinu svo ég fer í þá þegar ég sé fram á að þurfa að labba mikið :Þ Hvernig finnst þér best að sofa? Á hliðinni með sængina með andlitið að veggnum og með opinn glugga og frekar kalt í herberginu Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingahús eða svona matsölustaði? þoli ekki að láta stjana við mig á veitingastöðum þannig bara svona hálffína staði með góðan mat en ekki of mikla þjónustu Ertu hamingjusöm manneskja? já í augnablikinu Hversu sítt er hárið á þér? eitthvað neðar en axlir Hvernig viltu að augun í þér séu á litin? bara eins og þau eru Tekurðu einhver lyf? ofnæmislyf þegar ég man eftir því :Þ Talaru mikið? ég veit það ekki en mömmu finnst ég tala HÁTT Já ég er í vinnunni og það er lítið að gera :Þ

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Hihih það hlýtur að vera AFSKAPLEGA lítið að gera í vinnunni - en það er alltaf gaman að lesa svona:D

Anónimo dijo...

Hehe, þú ert ekki sjónvarpssjúklingur heldur tölvusjúklingur!

Anónimo dijo...

já alveg rétt, Hús andanna var um tvíburasysturnar er þaggi ?
og já mamma þín hefur rétt fyrir þér ;) þú hefur alltaf talað soldið hátt og enn hærra eftir skiptinemaævintýrið þitt hahaha
Selma

Anónimo dijo...

mér finnst þú ekkert tala hátt. Gæti kannski verið útaf því að ég hef eitthvað heyrt á það minnst að ég tali hátt... Skildi þó ekki vera einhver skiptinema baktería...?