viernes, 7 de octubre de 2005

aumingja tönnin mín

á á á á á á á á á á á á á á á á tönnin mín :'( ég var hjá tannsa áðan að láta bora mikið og núna þegar deyfingin er farin þá er lífið ekkert sérstaklega skemmtilegt :S og ég borgaði rúmann 10þús kall fyrir þessar pyntingar ! Tannlæknirinn minn er samt ansi skondin, talar alveg endalaust og maður getur náttúrulega ekkert svarað því að munnurinn á manni er fullur af drasli og deyfður í þokkabót :Þ Ég og Orri áttum alveg æðislegt kvöld í gær. Við skelltum okkur út að borða á Gallerí Fisk. Ég fékk mér hlýra og humar *namminammi* og Orri fékk sér eitthvað sem mig minnir að heiti skötusteik, það var alla veganna líka algjört sælgæti :Þ Mæli sko alveg með þessum stað ef fólki langar til að prófa góðan og svolítið öðruvísi fiskrétti :Þ Eftir matinn fórum við svo í bíó á 40 year old virgin, planið var að fara á kvikmyndahátíðina en við fundum ekkert sem okkur langaði að sjá svo þessi mynd varð fyrir valinu ... hún var fín :D Ég er búin að vera svo dugleg í dag, mætti í ræktina í morgun og lét svo pynta mig hjá tannlækni og er svo búin að sitja heima og vinna í ritgerðinni sem við Kolla þurfum að skila næsta miðvikudag :S Oktoberfest er svo í kvöld og mmmiiigggg langar svoooo. Er búin að hakka í mig verkjatöflur og er að bíða til að sjá hvort það slái á verkinn .... :S

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Tannlæknar eru af hinu illa! Ok, kannski ekki alveg, en þeir fara alveg með fjárhaginn hjá manni.

Íris dijo...

úff já svooo satt. Ég þarf meira segja að fara aftur í nóvember :'( svona er að draga það lengilengi að fara til tannsa :S

Anónimo dijo...

Hata tannlækna, valda manni miklum sársauka og rukka mann svo fyrir allt saman, og ekkert smáræði. Ég er búin með kvótann fyrir þetta árið og vonandi það næsta :oS Vona nú samt að það gangi vel hjá þér í næstu heimsókn til hans :o)

Anónimo dijo...

Maður heldur einhvern vegin alltaf að tönnin ,,lagist bara af sjálfu sér ef ég minnka nammi og gos" eða að þetta ,,hverfi bara", eilíf afneitun, kannast vel við þetta, lifi reglulega í svona afneitun.
Annars bara c u 2night :)