Úff mér leiðist :S Ég er í vinnunni og það er mjög lítið að gera og ég er bara of eirðarlaus til að læra :Þ ég held að eftir þetta brjálaða orkukast sem ég er búin að vera í síðustu vikuna þá er ég bara búin á því :Þ
Ég kom heim klukkan svona 21 í gærkvöldi algjörlega búin á því ... Þá var ég búin að vera á fullu frá því ég skutlaði Orra upp í skóla kl. 10. Fór og lét setja vetrardekkin undir, fór með flöskur fyirr 3000 kall í Sorpu, fór í IKEA, tók til í geymslunni. þvoði þvott, fór í heimsókn til Selmu, ömmu, afa og ömmu og svo líka mömmu og pabba, tókst að verða rafmagnslaus svo pabbi þurfti að keyra inn í Reykjavík og gefa mér start og taka til íbúðinni !!!! vá ég verð bara þreytt af því að skrifa þetta :Þ Ég ætlaði meira segja í ræktina í gær en þegar ég kom heim um kvöldið þá bara meikaði ég ekki að hreyfa mig meira og ég sver það ég held ég sé með smá harðsperrur í dag eftir þetta .... Það er nefnilega ekki auðvelt að hlaupa upp og niður 4 hæðir með þvott og kassa !
En jæja núna stefnir allt í ágætisverkefnaviku, þarf bara að koma mér aðeins niður á jörðina svo ég eyði ekki allri vikunni í að taka til :Þ ég er með langann lista sem ég þarf að vinna og lesa :S svo það er eins gott að maður læri :D
well ætli ég reyni ekki að gera eitthvað gagnlegt þennan 1 og hálfa tíma sem ég á eftir að vera í vinnunni og rölti svo bara heim og horfi á Friends í kvöld því ég þarf víst að mæta í vinnuna kl.8 í fyrramálið svo ég fer lítið út í kvöld :S

1 comentario:
Gangi þér súper vel að læra :o) Það kemur örugglega andinn yfir þig svona allt í einu....þá hættir maður að taka til og lærdómurinn á hug manns allan fram að jólum, þá er það bara jólahreingerningin ;o)
Publicar un comentario