sábado, 24 de septiembre de 2005

smá nostalgía í gangi

Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að það séu komin rúm 3 ár frá því ég kom heim frá Venezuela. Þetta eina ár af þessu 21 ári sem ég hef lifað hefur sett alveg ótrúlegt mark á mig og einhvern veginn er allt sem gerðist á því ári mér mjög mikilvægt, bæði það góða og slæma. Þarna úti átti ég örugglega einn erfiðasta tíma lífs míns en í kjölfarið kom líka einn sá besti og ég á það að þakka alveg frábæru fólki sem var með mér þarna úti og yndislega fjölskyldan sem ég var hjá síðustu 4 mánuðina ! Ég hef varla skoðað myndirnar mínar frá því ég koma heim, alla veganna ekki þær sem eru frá því ég var hjá fyrri fjölskyldunni, hehe ég var sko enginn smá bolla þarna undir lokin hjá þeim :Þ Það er líka ótrúlegt hversu miklum tilfinningaböndum ég er bundin þessu fólki sem var með mér þarna úti. Ég var að fá slæmar fréttir af einni bandarískri vinkonu minni og einhverra hluta vegna þá líður mér bara alveg hræðilega að geta ekkert gert fyrir hana. æ ég bara varð að koma þessu frá mér, ég er að skoða myndaalbúm sem ein vinkona mín er með á netinu og þar eru yfir 500 myndir sem hún tók í Venezuela, mikið til sömu myndirnar og ég tók svo ég er bara í smá nostalgíukasti :Þ aumingja þið sem nenntuð að lesa :Þ
svona smá hérna fyrir þá sem vilja sjá þennan magnaða stað sem ég bjó á í ár http://jessvenezuela.fotopic.net/c364184.html

3 comentarios:

Anónimo dijo...

geggjaður staður !! Þú ert ekkert smá dugleg manneskja, dáist alveg að þér... Ekki hefði ég þorað að vera í þessu landi í svona langantíma og hefði sko verið komin heim um leið ef ég hefði lent á fyrri fjölskyldu þinni!! Þú ert alveg mögnuð í alla staði Íris !!! Selma

Íris dijo...

takk :* þú ert alveg búin að bjarga deginum mínum :D

Anónimo dijo...

Ótrúlegur staður, gaman að geta séð í hvernig umhverfi þú varst þarna um árið :o)