sábado, 10 de septiembre de 2005
smá færsla í tilefni þess að það eru 105 dagar til jóla :Þ
Það var mjög gaman á nýnemakvöldinu hjá spænskunni, bara frekar kósý :Þ Einhvern veginn allt öðruvísi og mun persónulegra heldur en sálfræðin. Var ekki með myndavél svo engar myndir :S
En alla veganna ég var samt bara hundveik og fór heim um 11leytið :( og er síðan þá bara búin að hanga hérna heima veik :( Ég hef ekki komist að æfa vikum saman og það er svo pirrandi :( En þetta hlýtur að fara að lagast, mér líður betur í dag og vonandi verð ég bara orðin hress á mánudaginn :)
Annars er framundan mjög kósý kvöld hjá mér. Loksins er hvorki ég né Orri að vinna svo við getum kannski eldað og borðað saman :) Svo er OC fyrsti þátturinn í 3. seríu alveg að koma inn svo við getum horft á hann í kvöld :D Vá get ekki beðið að sjá hvernig þessi sería byrjar eftir endann á seríu 2 ....... hmmm segi ekki meira svo maður skemmileggi nú ekki fyrir þeim sem eru að byrja á henni :Þ
Familiían mín og svo stórfjölskyldan eru að gera svaka plön um áramótin. Fjölskyldan mín er sko alveg súpersamheldin svo að við ætlum öll, rúmlega 30 manns að fara á Apavatn um áramótin ! Svolítið spes en mér finnst þetta bara frábært, áramótin hafa líka endað hálf sukkí svona undanfarin ár svo þetta verður fín tilbreyting :Þ
Svo ætlum við fjölskyldan að vera upp í bústað um jólin, svo ég verð í burtu alveg frá svona 21. des til 1.jan ! Orri verður reyndar heima um jólin en hann kemur líklegast til okkar e-n tímann milli jóla og nýárs og fer svo með okkur á Apavatn og eyðir áramótunum með mér :D Það verður svo gott að hafa hann :Þ og líka skrítið að vita til þess að á aðfangadagskvöld verður hann með fjölskyldunni sinni en fer svo heim til okkar og verður bara einn ! en allaveganna þá er ég örugglega sú eina sem er farin að plana jólin :Þ Mér finnst bara svo æðislegt að fara úr bænum á þessum tíma :Þ
eníhús ég ætla að reyna að fara að læra smá. Ætlaði að læra rosalega mikið í dag en svo fór dagurinn bara í að búa til rosa flott skjal þar sem ég er búin að skipuleggja alla heimavinnu sem ég þarf að gera í hverri viku fram að jólum ! Já ég veit ég er skipulagsbrjáluð .... held ég hafi fengið þetta frá mömmu :*
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario