miércoles, 28 de septiembre de 2005
sin título
† † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † † †
Á morgun eru komnir 3 mánuðir frá því að Erick dó. Það hefur ekki liðið sá dagur að mér sé ekki hugsað til hans og einhverra hluta vegna er þetta mér alveg rosalega erfitt í augnablikinu.
Mér finnst svo erfitt að hafa ekki fengið að kveðja hann, þetta er svo óraunverulegt því að þetta gerðist svo langt í burtu og eina breytingin fyrir mig er bara að ég heyri ekki neitt í honum núna, sé bara nafnið hans á msn en veit að hann á aldrei aftur eftir að logga sig inn og spyrja hvernig la loca islandesa hafi það.
Svo held ég að það að ég sé í spænskunámi hjálpi mér ekkert við að hugsa minna um þetta. Venezuela er mér enn ofar í huga núna heldur en það hefur verið undanfarin ár og ég er alltaf að fá þá hugmynd þegar ég þarf að gera einhvern verkefni að ég geti látið Erick kíkja yfir þetta fyrir mig ...... en svo man ég það aftur að það er ekki hægt.
Ég hef heldur ekki fengið neinar fréttir meira af þessu máli, ekkert hvort að það var dæmt eða hvað var gert. Það gerir þetta líka enn verra, ég vil vita að mönnunum sem gerðu þeim þetta sé refsað. Ég vil ekki trúa því að landið sem ég elska svona mikið sé svona mikið bananalýðveldi að lögreglan sjálf þurfi ekki að sinna neinum reglum!
Ég hef heldur ekkert heyrt í Jorge, vini mínum sem að sagði mér fréttirnar, frá því þetta kvöld. Það finnst mér rosalega óþægilegt, ég hef enga leið heldur til að fá fréttir af honum .... vona bara að hann eigi góða að sem hafa stutt hann.
Ég bara varð að létta á hjartanu, líður aðeins betur. Einhverra hluta vegna finnst mér svo erfitt að tala um þetta, mér finnst þetta bara svo óraunverulegt þegar ég heyri sjálfa mig segja frá þessu, þetta verður bara fjarlægt, einhver sem ég þekkti aldrei, bara saga ...
Ég vil ekki lesa þetta yfir svo bara fyrirgefið innsláttarvillur og ruglingslegt orðalag
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

4 comentarios:
knúúúús !!!!!! Hrikalegt þegar ungt fólk fer ! vona að þessir löggufjandar fá lífstíðarfangelsi!!!
i´m only a phone call away, you know that
Selma Sól
æ takk Selma mín, þú ert æðislegt :*
æ, snúllan mín ég samhyggist þér innilega. Farðu vel með þig :o)
Aei astin min tetta er svo svakalegt:( Eg skal gefa ter mooorg RISA knus tegar eg kem heim a sunnudaginn;)
Publicar un comentario