jueves, 8 de septiembre de 2005

nammi nammi

Costa Rica, Cuba, Argentina :D mmmm já ég er að láta mig dreyma .... Þessi lönd auk Spánar eru með stúdentaskipti við HÍ .... Mig langar !!!! Fyrsta vikan hefur bara gengið alveg með ágætum :Þ Stöku stress og vesen með stofur en allt hefur reddast :D Mér líst alveg rosalega vel á þetta, mikil vinna og allt öðruvísi en sálfræðin á svo marga vegu. Öll námskeiðin fara fram á spænsku og ég skil kennarana bara mjög vel, ég hélt að það yrði meira mál. Nýnemadjammið er í kvöld og ég ætla sko ekki að vera veik ! Ég er með þessa sömu %&#$# kinnholusýkingu og ég var með fyrir ári síðan og þá tók það mig 4 mánuði að losna við þetta ! Og ég gat ekkert æft eða neitt á meðan því ég var bara alltaf slöpp og svona fljótandi á gráu skýi :S En jæja í kvöld ætla ég sko ekki að vera veik, hef engan tíma til þess, því það er bara sangría og spænskunemadjamm sem kemst að .... þessi veikindi mín verða bara að bíða.

1 comentario:

Anónimo dijo...

Skemmtu þér vel!!!